Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þröstur Ástþórsson
Sigurdur Sigurbjornsson
Vista
svg

30

svg

29  Skoðendur

svg

Skráð  29. nóv. 2025

raðhús

Háteigur 34

250 Garður

73.440.000 kr.

600.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2539163

Fasteignamat

6.290.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
122,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

M2 Fasteignasala kynnir - Nýtt glæsilegt 4.herbergja miðjuraðhús við Háteig 34, 250 Garður, Suðurnesjabæ. 

Húsin skilast með malbikuðu bílaplani. Upphituðum stéttum, ruslaskýlum og timburverönd bakatil.
Stutt í íþróttamiðstöðina í Garði, Grunnskólann í Garði, Golfklúbb Sandgerðis og Gólfklúbbinn Hólmsvöll í leiru.


Eignin Háteigur 34 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 253-9097, birt stærð 122.4 fm, nánar tiltekið eign merkt 01-04 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

*Myndir eru úr sambærilegri íbúð og aðeins til viðmiðunar.

Frágangur innanhúss:
Eldhús frá HTH innréttingum með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofni í vinnuhæð og helluborði. Heimilistæki frá AEG.
Baðherbergi með HTH innréttingu, upphengdu salerni og sturtu með glerskilrúmi. Gólf og veggir flísalagðir. Blöndunartæki Grohe.
Þvottaaðstaðar er inná baðherbergi með HTH innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Innréttingar og fataskápar er allt frá HTH og í sama lit. 
Svefnherbergin eru þrjú og hafa fataskápa, einnig frá HTH. 
Gólfefni eignarinnar eru vönduð; baðherbergi, þvottahús og forstofa eru flísalögð, en önnur rými eignarinnar eru með harðparketi frá Birgisson. 
Innihurðar eru frá Birgisson. Í loftum er innfelld LED lýsing. Eignin er með tengjum fyrir tölvu og síma ásamt hitastilli í hverju rými fyrir gólfhitakerfi frá Rehau.

Byggingarlýsing: 
Útveggir eru hefðbundnir timburveggir með timburklæðningu.
Þak er byggt upp með kraftsperrum. Ofan á borðaklæðningu kemur vatnsvarinn þaköndunardúkur, síðan er þakið klætt með aluzink þakklæðningu.
Gluggar og hurðir eru úr timbri með álkápu, hvítir að lit. Opnanleg fög eru topphengd með þjófavörn. Björgunarop eru í gluggum í svefnherbergjum.
Öll inntök og deilikistur eru í anddyri. Húsið verður hitað upp með gólfhita sem lagður er í einangrun ofan á steypta botnplötu, handklæðaofn er á baðherbergi.
Niðurföll eru í þvottahúsi og inn á salernum. Útsog er í eldhúsum og frá baðherbergjum/ þvottahúsum upp í gegnum þak.
Innveggir innan íbúða eru léttir gifsveggir Hljóðeinangrun á vegg milli íbúðareininga er 55dB og brunakrafa REI90.
Gólf í baðherbergi eru vatnsheld með niðurfall í sturtu. Gólf verða afhent án kants við sturtu þannig niðurfallið þar er öryggisniðurfall.
Veggir við sturtu er kvoðaðir þannig að þeir þoli gufu og raka.
Við hverja íbúð eru tvö bílastæði sem eru steypt eða hellulögð. Stétt framan við hús og við inngang er upphituð. Lóð er með grasi, tré- og runnagróðri. Timburpallar fyrir aftan. Sorpgeymslur eru í innan lóðar og er gert ráð fyrir þremur ílátum 3x240 lítrar á hverja íbúð.

Byggingaraðili er Sparri ehf
Sparri ehf. reisir fjögurra íbúða raðhús með sérinngöngum og timburverönd bakatil.
Íbúðir eru í tveimur stærðum, endaraðhúsin eru 4.herbergja og 122,4 m² að stærð en miðjuraðhúsin eru 3.herbergja 106,9 m² að stærð.
Allar íbúðir afhendast fullbúnar að innan sem utan með gólfefnum.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

Hólmgarður 2c, 230 Reykjanesbær
phone
M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

Hólmgarður 2c, 230 Reykjanesbær
phone