Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

72

svg

65  Skoðendur

svg

Skráð  2. des. 2025

fjölbýlishús

Skólatröð 4

200 Kópavogur

149.900.000 kr.

1.422.201 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2522890

Fasteignamat

89.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
105,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg penthouse íbúð að Skólatröð 4, 200 Kópavogi. Mjög vönduð 105,4 fm 3 herbergja Penthouse-íbúð í nýju og glæsilegu lyftuhúsi með tvö bílastæði í bílakjallara. Sérgeymsla í sameign, skráð 11,4fm. Stórar þaksvalir c.a. 95fm eru meðfram aðalrými og niður með svefnherbergjum með útsýni í allar áttir.  Bókið einkaskoðun og fáið allar nánari upplýsingar hjá Sigurði Gunnlaugssyni, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is

Sækja söluyfirlit HÉR

Nánari lýsing. íbúðin er afhent með gólfefnum, með vönduðum innréttingum frá Selós, steinn á borðum. Flísalögð baðherbergi og þvottahús með I Cocci Cenere 60x120cm frá Ebson bæði gólf og veggir að hluta.  Gólfhiti er í íbúðinni og jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Hefðbundið útsogskerfi er í geymslum. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós. Skápar eru úr vönduðu stitsterku melamin efni. Vönduð heimilistæki eru í íbúðinni frá AEG. Kæli-/frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttinguna og spanhelluborð. Dekton – Rem steinborðplötur eru í eldhúsi og Silestone – Nolita steinborðplötur á baði. Gólfhiti er í gólfi baðherbergis auk handklæðaofns. Stórar þaksvalir eru meðfram aðlrými með útsýni í allar áttir, yfir Kópavog, út á sjó, Bessastaði, Bláfjöll og fl. Tvö Bílastæði í bílakjallara fylgja ibúðinni. 
Sameiginlegur garður: Sólríkur og skjólgóður inngarður með leiktækjum, gróðri og aðstöðu fyrir iðandi mannlíf.
   
Samantekt: um er að ræða sérlega skemmtileg 3ja herbergja penthouse íbúð með miklu útsýni í allar áttir. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðarinnar, innan íbúðar er vélræn loftskipti sem tryggja aukin loftgæði.
Íbúðin og húsið allt er Svansvottað. Mjög er vandað til allrar framkvæmdar. Allt byggingarefni og öll framkvæmd verkefnisins miðast við kröfur Svansins.
Allar nánari Upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasala í GSM 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Sigurður Gunnlaugsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jan. 2025
7.660.000 kr.
135.000.000 kr.
20401 m²
6.617 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ