Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

19

svg

18  Skoðendur

svg

Skráð  2. des. 2025

fjölbýlishús

Grensásvegur 1

108 Reykjavík

86.900.000 kr.

929.412 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519725

Fasteignamat

69.650.000 kr.

Brunabótamat

59.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
93,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna glæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja, 93,5 fm íbúð á 4. hæð með svölum til suð-austurs að Grensásvegi 1.
Húsið er 41 íbúða vandað fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Iwa. Innfelld LED lýsing í eldhúsinnréttingu og í niðurteknum loftum.

Bókið skoðun hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 76.650.000 kr.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 93,5 fm og þar af er geymsla skráð 6,6 fm.

Nánari lýsing:
Anddyri/gangur
með parket á gólfi og góðan yfirhafnaskáp.
Alrými er opið og bjart rými þar sem eru glæsilegt eldhús, stofa og borðstofa. Parket á gólfum.
Stofa með útgengi á svalir sem snúa til suð-austurs. Svalahandrið úr gleri.
Eldhús er stórt með góðri innréttingu með eyju, glæsileg Bosch tæki í eldhúsi, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háfi frá Eico.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt uppí loft á þremur hliðum með 60x60 cm flísum, innrétting og "walk-in" sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Innréttingar fyrir þvottavél og þurrkara eru inná baðherbergi.
Innfelld lýsing í lofti. Gólfhiti er í allri íbúðinni.

Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.

Bílakjallari/bílastæði.
Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt. Í fullbúnum bílakjallara verða settar upp nokkrar hraðhleðslustöðvar fyrir rafknúnar bifreiðar.
Frábær staðsetning miðsvæðis í borginni við Laugardalinn og Skeifuna. Mikið úrval verslana og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og næsta nágrenni.
Leik-, grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Aðalsteinn Jón Bergdal
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. maí. 2024
67.850.000 kr.
84.000.000 kr.
30407 m²
2.763 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík