Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Vista
fjölbýlishús

Holtsvegur 43

210 Garðabær

74.900.000 kr.

942.138 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2359227

Fasteignamat

71.650.000 kr.

Brunabótamat

74.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
79,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 3. desember 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Holtsvegur 43, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 3. desember 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Holtsvegur 43 í 210 Garðabæ er björt og falleg 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í nýlegu lyftuhúsi með sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu. Eignin er samtals 79,5 ferm, þar af er geymsla 8,7 ferm. Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, þvottaherbergi innan af baðherbergi og rúmgóðar 16 ferm lokaðar suðursvalir. Í sameign hússins er sér geymsla sem hefur verið breyt í auka herbergi sem er á sömu hæð og íbúðin. Þá er hjóla- og vagnageymslu og dekkjageymsla á jarðhæð. 

Nánari upplýsingar um eignina veitir: Ásgeir Þór Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 7720102 eða í tölvupósti asgeir@allt.is.
 
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Er flísalögð með fataskáp 
Eldhús: Opið eldhús með góðri viðarinnréttingu, steinborðplötu og ofn í vinnuhæð. Parket á gólfum. 
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgang út á stórar suðursvalir með svalaskjóli, viðarklæðning er á gólfi svalanna. 
Svefnherbegi: Með góðum fataskáp og parket á gólfi. 
Baðherbergi: Með snyrtilegri viðarinnréttingu, flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturtu og upphengdu salerni. Innaf baðherbergi er þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svalir: 16 fm rúmgóðar svalir með 
Geymsla: Sér geymsla með glugga er í sameign og sömu hæð, sem búið er að breyta í frístundarherbegi.  
Sameign: Í sameign á jarðhæð er hjóla/vagna-geymsla og dekkjageymsla
Bílastæði: Sér bílastæði er í bílageymslu. Lagt hefur verið fyrir hleðslustöðvum í bílgeymslunni....ATH hleðslustöð fylgir ekki þessu bílastæði. 
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign.

Eignin er einstaklega vel staðsett á fjölskylduvænum stað í Urriðaholtinu þar sem stutt er í góðar gönguleiðir við vatn og náttúru, sem og golfvelli og aðra útivist. Stutt í alla helstu þjónustu og verslanir eins Costco, bónus og Ikea.
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. des. 2023
67.100.000 kr.
62.000.000 kr.
79.5 m²
779.874 kr.
31. mar. 2018
16.500.000 kr.
41.900.000 kr.
79.5 m²
527.044 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone