Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Tryggvi Guðmundsson
Guðmundur Óli Tryggvason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1953
svg
310,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu -  Hjallavegur 11  Ísafirði - Stórt og glæsilegt 310 m² einbýlishús á tveimur hæðum með 105,5 m² stórum bílskúr!
Stór 1500 m² lóð, einstaklega gott útsýni yfir fjörðinn og út á djúp.
Húsið var upphaflega byggt í kringum1953 og gegndi hlutverki sem áhaldahús og síðar björgunarsveitarhús. Á árunum 2006-2007 var húsið svo endurnýjað og stækkað, þá byggð 100 m² efri hæð ofan á húsið.
Húsið var einangrað og klætt með bárujárni í kringum 2008 og settar voru upp svalir á efri hæð.  Húsið er vel einangrað og kyndikostnaður ekki mikill miðað við stærð.
Á jarðhæð er forstofa, gangur og fatageymsla, geymsla og þvottahús, tvö svefnherbergi og baðherbergi ásamt bílskúrnum.
Á efri hæð er stórt opið rými þar sem eru stofa og borðstofa og eldhús, einnig baðherbergi og stórt svefnherbergi með fataherbergi.



Nánari lýsing:
Jarðhæð:

Komið inn í flísalagða forstofu, fataherbergi með hillum og fatahengi, flísar á gólfi. Hiti í er í gólfi á jarðhæð nema í minna svefnherbergi.
Rúmgott þvottahús með innréttingu og útgengi út í bakgarð, flísar á gólfi. Geymsla með hillum. Innangengt úr gangi inn í bílskúr.
Gangur/hol með parketi á gólfi. Tvö svefnherbergi á hæðinni.
Minna herbergi með parketi á gólfi og ofnakerfi fyrir upphitum. 
Stærra herbergið einnig með parketi á gólfi, mjög rúmgott herbergi sem var áður skipt niður í tvö herbergi og því mögulegt að bæta við svefnherbergi þar.
Baðherbergi uppgert 2017, góð aðgengileg sturta og innrétting, flísar á gólfi og veggjum.

Efri hæð:
L - laga tréstigi á milli hæða. Við stigagang er svalahurð, stórar og skjólgóðar 65m² svalir með góðu útsýni
Stórt opið rými þar sem er sjónvarpsstofa, setustofa, borðstofa og eldhús. Góð lofthæð á efri hæðinni.
Eldhús með stórri innréttingu frá Tak-innréttingum, eyja með gashellu/ragmagnshelluborði og háfi, ofn og örbylgjuofn, uppbþottavél, mjög gott skápapláss.
Stór borðstofa, setustofa og sjónvarpsstofa, gott útsýni yfir fjörðinn. Parket á gólfi.
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi, stórt fataherbergi/geymsla inn af herberginu.
Baðherbergi með hornbaðkari með nuddi, innrétting, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.

Bílskúr er skráður 105,5 m² að stærð, þar stór bílskúrshurð með rafmagnsopnun á norðurgafli hússins, einni er inngönguhurð á austurhlið. Steypt málað gólf, gott geymslupláss, gert er ráð fyrir salerni í horni bílskúrs en það á eftir að fullkára.
Bílskúrinn er tilvalinn til dæmis fyrir iðnaðarmenn eða handverksfólk sem vill hafa vinnuaðstöðu heima við.
Stórt malarborið bílaplan norðan megin við bílskúr. 

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. des. 2006
9.890.000 kr.
15.000.000 kr.
310.5 m²
48.309 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone