Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
svg

145

svg

142  Skoðendur

svg

Skráð  8. des. 2025

fjölbýlishús

Suðurhella 14 íb. 0401

221 Hafnarfjörður

79.900.000 kr.

651.713 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2528769

Fasteignamat

35.500.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
122,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir glæsilega nýbyggingu á frábærum stað í Vallahverfinu í Hafnarfirði, einstakt útsýni yfir hraunbreiðuna og til fjalla.  Um er að ræða fallegar og sérlega rúmgóðar íbúðir á mjög hagstæðu fermetraverði. Íbúðirnar afhendast með vönduðum innréttingum frá Axis og gólfefnum frá Birgisson. 

2ja 3ja og 4ra herbergja íbúðir
Stærðir frá 67,9 fm til 123,1 fm
Verð frá 58 millj.

Bókaðu einkaskoðun við sýnum samdægurs - Sjón er sögu ríkari!
Anna Sigurðardóttir lgf., as@heimili.is, sími 898-2017  
Brynjólfur Snorrason lgf., brynjolfur@heimili.is, sími 896-2953 

Gunnlaugur A. Björnsson lgf., gab@heimili.is, sími 617-5161                           

Nánari lýsing:
Íbúð 0401 er 122,6 fm fjögurra herbergja íbúð á 4.hæð og skiptist í anddyri,  þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu með útgengi á svalir og útsýni yfir hraunið.  Eignin er til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
​​​​

Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi. 
Stofa og borðstofa: Í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi og útgengi á svalir.
Eldhús: sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi. 
Þjrú svefnherbergi: Rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfum. 
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, vegghengt salerni, blöndunartæki frá Tengi. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson. 
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
ATH: Myndir eru af sýningaríbúð og getur skipulag íbúðar verið annað. Efnisval á innréttingum og gólfefnum er eins í öllum íbúðum. 

Húsið stendur á horni Suðurhellu og Krísuvíkurvegar og markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem íbúðum á jarðhæð fylgja afmarkaðir sérafnotafletir og íbúar í íbúðum efri hæða geta notið fallegs útsýnis af svölum yfir hraunið. Gróðursett verður meðfram allri lóðinni með lágvöxnum runnum, einnig verða ker á lóðinni með sígrænum plöntum. Fyrir framan hús verða bílastæði og á bak við hús verður sameiginlegur garður með leiktækjum.
Fallegar og vel skipulagðar íbúðir í nýju fjölbýlishúsi í nágrenni við fallega náttúru. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnis www.sudurhella.is 
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone