Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
svg

7

svg

7  Skoðendur

svg

Skráð  8. des. 2025

fjölbýlishús

Lindargata 37

101 Reykjavík

109.900.000 kr.

1.162.963 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2297900

Fasteignamat

85.450.000 kr.

Brunabótamat

57.910.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2010
svg
94,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandaða og glæsilega 3ja herbergja 94,5 fermetra íbúð á 2. hæð með rúmgóðum yfirbyggðum suðursvölum í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu í Skuggahverfinu í Reykjavík. Sér bílastæðis fylgir með rafhleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins ásamt sér geymslu og hjólageymslu. Baðherbergi eignar er nýlega endurnýjað á smekklegan hátt og svalalokun var sett upp árið 2020.

Sameign hússin er einstaklega glæsileg með tveim lyftum og setbekk. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, veitingahús og mannlíf miðborgarinnar. 


Lýsing eignar:
Inngangur, fallegur flísalagður og með setbekk.
Forstofa, parketlögð með innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, gólfhiti, innrétting, handklæðaofn,og flísalögð sturta með sturtugleri. Innaf baðherbergi er þvottaaðstaða sem í dag er nýtt sem fataherbergi.
Herbergi l, parketlagt.
Gangur, parketlagður.
Stofa / borðstofa, parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar yfirbyggðar svalir til suðurs með gólfklæðningu.
Eldhús, parketlagt og bjart, opið við stofu og með vönduðum hvítum og viðarinnréttingum með hvítri quarts borðplötu, rafmagnshelluborði, tengi fyrir uppþvottavél og ofn í vinnuhæð. 
Herbergi ll, parketlagt og  rúmgott. Fataskápar sem tilheyra herberginu eru til í geymslu.

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði, er rúmgott og búið er að tengja fyrir rafhleðslustöð í bílastæði. Stæðið er merkt 16Y.
Sérgeymsla, á jarðhæð, 8,2 fermetrar að stærð, máluð gólf og hillur.
Sameiginleg hjólageymsla, á jarðhæð er með útgengi á baklóð. 

Húsið er einangrað að utan og klætt með flísum og er í góðu ástandi. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í iðandi mannlíf, veitingahús, afþreyingu, verslanir og þjónustu.

Allar nánar upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. sep. 2020
60.350.000 kr.
54.000.000 kr.
94.5 m²
571.429 kr.
14. feb. 2013
16.950.000 kr.
935.000.000 kr.
3772.5 m²
247.846 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone