Lýsing
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð með sér inngangi og sér stæði í bílageymslu á 4. hæð í glæsilegu lyftuhúsi við Naustabryggju 4, Reykjavík. Útgengt út á mjög rúmgóðar svalir frá stofunni. Stórkostlegt útsýni, fallegur sameiginlegur garður og einstaklega velumgengin og snyrtileg sameign. Hér er um að ræða virkilega góða eign í ört vaxandi og spennandi íbúðahverfi í Reykjavík þaðan sem örstutt er í allar áttir. Húsið Básbryggja 1-3, Naustabryggja 2 og Naustabryggja 4 mynda saman eitt hús. Húsið er steinsteypt fjölbýlishús einangrað og klætt að utan með stáli.
Vinsamlega bókið skoðun hjá Önnu Sigurðardóttur, löggiltum fasteignasala, sími 898-2017 netfang as@heimili.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum forstofuskáp og þaðan gengið inn bjarta og rúmgóða stofu og eldhús með flísum og parketi á gólfum, útgengt er úr stofu út á rúmgóðar svalir. Í eldhúsi er falleg upprunaleg innrétting og harðplast á borðum. Innbyggð uppþvottavél, keramik helluborð og bakarofn. Gengið er inn í sér þvottahús inn af eldhúsi, í þvottahúsi er skolvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgott flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, salerni og vaski í innréttingu. Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum skápum og parketi á gólfum. Sér geymsla íbúðar merkt á teikningu 00-15 er í kjallara. Næg bílastæði eru við húsið og glæsilegur sameiginlegur garður/leiksvæði á bak við húsið.
Eignin Naustabryggja 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 2261719, birt stærð 86,9 fm.
Hér er um að ræða virkilega rúmgóða og smart íbúð i glæsilegu fjölbýlishúsi í stórfenglegu umhverfi í næsta nágrenni við hafið og náttúruna og skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir.
Sjón er sögu ríkari!
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.