Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
sumarhús

Hallkelshólar lóð 60

805 Selfoss

39.900.000 kr.

507.634 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2248912

Fasteignamat

34.600.000 kr.

Brunabótamat

37.020.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1926
svg
78,6 m²
svg
3 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.

Lýsing

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Hallkelshólar lóð 60, 805 Selfoss, rúmlega 60fm frístundahús á 5300fm leigulóð í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sólstofa og góður pallur með heitum potti, tvö gestahús, hænsnakofi og niðurgrafið gróðurhús.

Inngangur er um bíslag sem byggt var við húsið 2010 en byggingarár hússins er skráð 1926. Bíslagið er um leið eldhúskrókur með baðherbergi inn af honum. Sturtuklefi þar, handlaug og klósett og gengt út á pall. Úr bíslagi er gengið inn gang með eldhúsinnréttingu og op þar upp á lágt svefnloft hvar er ágætt svefnpláss fyrir 3-4. Svefnherbergi til hægri með tvöföldum fataskáp, og svo stofa með uppteknu lofti.  Gengt úr henni fram í sólstofu og þaðan út á pall. Undir stórum hluta hússins er kjallari, manngengur að hluta og er  ágæt geymsla. Annað tveggja gestahúsa á pallinum og myndar ásamt skjólgirðingu gott skjól fyrir útigrillið á pallinum. Gestahúsið samanstendur af tveimur svefnherbergjum með kojum og nettu klósetti á milli. Bústaðurinn er hitaður með varmadælu og rafmagnsofnum og rafmagnshitakútur sér um heita pottinn með ágætum.  Spölkorn frá húsinu er svo niðurgrafið gróðurhús og hænsnakofi auk annars gestahúss sem á eftir að klára frágang á, - en hefur verið notað sem gestahús með svefnaðstöðu fyrir tvo. Trjágróður á lóðinni veitir ágætt skjól. Byggingarár hússins er skráð 1926 en húsið ber þess glögg merki að hafa fengið gott viðhald í gegnum tíðina. 

-- VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN --

Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali
s. 896 9565,
loftur@husfasteign.is 


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

img
Loftur Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum