Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hraunbær 116

110 Reykjavík

78.900.000 kr.

636.804 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2045046

Fasteignamat

75.700.000 kr.

Brunabótamat

58.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
123,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna fjölskylduvæna og mikið endurnýjaða íbúð við Hraunbæ 116. Um er að ræða 5 herbergja íbúð á 2. hæð.
Eignin er skráð 123,9 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 118,7 fm. og sér geymsla íbúðar í sameign 5,7 fm. Íbúðin ar algerlega endurnýjuð 2022 þar með talið innréttingar, gólfefni, innihurðir og rafmagn.

Nánari lýsing.
Komið er inn í opið hol og þaðan inn í bjart og opið alrými með stofum og eldhúsi.
Fataskápur eru í holi.
Eldhúsið var endurnýjað (2022) með Ikea innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, þar er gott geymslupláss og vinnuaðstaða góð.
Borðstofan er í beinu framhaldi af eldhúsinu og gengið frá henni út á skjólgóðar suðursvalir.
Stofan er rúmgóð og og björt í opnu flæði fram af borðstofunni - þar eru góðir gluggar til suðurs inn í skjólgóðan garð.
Upphafleg herbergjaskipan er með 4 herbergjum, en í dag hefur eitt þeirra verið innréttað sem þvottahús með innréttingu og góðu skápaplássi, þar eru opnanlegir gluggar.
Svefnherbergisgangur rúmgóður og mætti koma fyrir fataskáp, út frá honum eru 3 herbergi;
Hjónaherbergi  er rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi er rúmgott, minna herbergið er með fataskáp.
Baðherbergi var gert upp 2022, þar er baðkar með upphengdri sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting undir handlaug, gluggi er með opnanlegu fagi..
Á gólfum er ljóst harðparket fyrir utan á baðherbergi sem er flísalagt. Innihurðir eru nýlegar (2023).
Þvottahús er rúmgott með góðum innréttingum og góðu skipulagi, þar eru gluggar til tveggja átta en þetta rými var áður eldhús - auðvelt er að fá þarna gott herbergi enda sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Allir ofnar í íbúðinni, fyrir utan 3 ofna í stofu, voru endurnýjaðir 2022.
Þetta er einstaklega vel skipulögð íbúð sem býður upp á ýmsa möguleika.
Í sameign er sér geymsla íbúðarinnar (5,7 fm.) og sameiginlegt þvottahús þar sem hver hefur tengi fyrir sína þvottavél, sem og sameiginlega vagna- og hjólageymsla.
Gengið er út í garð frá sameign, en hann er skjólgóður enda rammaður inn af fleiri húsum, þar er leikaðstaða.
Þak var endurnýjað árið 2020.   Árið 2021 var endurnýjuð rafmagnstafla í sameign og sett hreyfiskynjuð Ledljós.  Suðurhlið hússins var klædd fyrir árið 2007, norðurhlið hússins var spurnugviðgerð og máluð árið 20024 sem og gluggar og karmar á þeirri hlið.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignsala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. okt. 2021
42.900.000 kr.
50.500.000 kr.
123.9 m²
407.587 kr.
8. feb. 2007
20.960.000 kr.
21.200.000 kr.
123.9 m²
171.106 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík