Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðný Ósk Sigurgeirsdóttir
Vista
svg

176

svg

150  Skoðendur

svg

Skráð  21. des. 2025

hæð

Drekavellir 4

221 Hafnarfjörður

119.000.000 kr.

777.270 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2280860

Fasteignamat

88.250.000 kr.

Brunabótamat

85.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
153,1 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 29. desember 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Drekavellir 4, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd mánudaginn 29. desember 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Drekavellir 4 - Hafnarfirði

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjarta, fallega og mikið endurnýjaða 5 herbergja íbúð við Drekavelli 4, á Völlunum í Hafnarfirði.
Sérinngangur er í íbúðina sem er á 2.hæð og fylgir merkt bílastæði.
Viðhaldslítið hús með aðeins 4 íbúðum.

Opið hús mánudaginn 29.desember frá kl 17:00- 17:30
Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið á stofan@stofanfasteignir.is eða í sima 866 7070


Fasteignamat 2026 verður 96.500.000 kr
 
  • Sérinngangur
  • Merkt bílastæði
  • Hleðslustöð við húsið
  • Yfirbyggðar svalir með svalalokun og gólfhita
  • Tengi og niðurfall fyrir heitan pott á svölum
  • Snjóbræðsla í stiga og við húsið
  • Fjögur svefnherbergi
  • Baðherbergi og gestasalerni
  • Hangandi gardínur frá Álnabæ í öllum gluggum fylgja ásamt myrkvunargardínu í hjónaherbergi
  • Öll ljós og ljósakrónur fylgja
  • Öryggiskerfi fylgir
  • Hljóðeinangrandi loftdúkur í öllum rýmum íbúðar
  • Gólfhiti

Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi.
Gangur / hol með parketi á gólfi. Fallegur og glæsilegur gangur þar sem vítt er á milli veggja.
Fataherbergi með góðum skápum. Var áður geymsla sem breytt var í fataherbergi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með aukinni lofthæð og stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt úr stofu á rúmgóðar svalir með svalalokun og gólfhita.
Eldhús er með hvítri innréttingu frá Kvik, tveir bakarofnar í vinnuhæð, helluborð og háfur, tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Þrjú rúmgóð herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting með tveimur handlaugum, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar. Tengi fyrir þvottavélar á baðherbergi.
Gestasalerni með innréttingu, handlaug og upphengdu salerni. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. (Var áður þvottahús en breytt í gestasalerni).
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Endurbætur skv.seljanda árið 2023:
Rafmagn endurnýjað að miklu leyti 
Hljóðeinangrandi loftdúkur í allri íbúðinni
Baðherbergi endurnýjað
Gestasalerni bætt við þar sem áður var þvottahús
Gólfhiti settur í svalir og þær flísalagðar
Tengi og niðurfall sett fyrir heitan pott
Loftræsting staðsett í eldhúsi
Öryggiskerfi sett upp
Rafmagnsarinn settur upp.

Þetta er björt og rúmgóð eign á góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, verslanir og helstu þjónustu.
Eign sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti.
 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. júl. 2022
60.100.000 kr.
96.200.000 kr.
153.1 m²
628.347 kr.
10. sep. 2019
52.850.000 kr.
59.250.000 kr.
153.1 m²
387.002 kr.
7. jún. 2017
41.250.000 kr.
53.000.000 kr.
153.1 m²
346.179 kr.
18. jan. 2007
3.940.000 kr.
33.900.000 kr.
153.1 m²
221.424 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfirði