Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
parhús

Höfðamói 3

603 Akureyri

125.000.000 kr.

746.714 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2541204

Fasteignamat

12.450.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
167,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Höfðamói 3 - Nýbygging
Glæsileg 4-5 herbergja parhúsaíbúð með bílskúr í Móahverfi - stærð 167,4 m²
Eignin selst fullbúin og verður til afhendingar í apríl / maí 2026

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpshol, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu sem nýst getur sem fjórða svefnherbergið og bílskúr. 

Eignin er timburhús á steyptri plötu og með einhalla þaki. Húsið er klætt að utan með dökkri viðarklæðningu, walnut spruce frá Darksidewood. Ljósar plötur eru undir skyggni kringum forstofuhurðina.

* Gólfhiti er í öllum rýmum.
* Harðparket, lagt í fiskibeinamynstri verður á öllum gólfum fyrir utan votrými.
* Loft í forstofu, eldhúsi, stofu og svefnherbergjum verða tekin upp sem og í bílskúr.
* Dúkur verður í loftum í öllum rýmum fyrir utan bílskúr, baðherbergi og þvottahús. 
* Innfelld lýsing í öllum rýmum nema bílskúr.
* Vandaðar innréttingar með stein á bekkjum. Litur á innréttingum og skápum er casella oak brown og angora grey.
* Loftskiptikerfi.
* Varmaskiptir á neysluvatni.
* Þrefalt gler.
* Veggir eru klæddir með osb plötum og gipsi.
* Steypt bílaplan og verönd með hitalögnum í, lokað kerfi. 

Forstofa
 verður með flísum á gólfi og tvöföldum skáp, casella oak brown. 
Eldhús, tvílit innrétting og eyja með ljósum stein á bekkjum og á milli skápa. Gert er ráð fyrir að hægt sé að sitja við eyjuna. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.  Önnur tæki eru ofn, combi ofn og helluborð með viftu í. Rennhurð er úr eldhúsinu út á steypta verönd.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem loft eru tekin upp og gluggar til þriggja átta. Harðparket verður á gólfi. Hurð er út úr stofunni á baklóðina þar sem möguleiki er að setja verönd, búið er að jarðvegsskipta um 2 metra út frá húsi.
Svefnherbergin eru þrjú og verða öll með harðparketi á gólfi og fataskápum, casella oak brown. Stærð herbergja er skv. teikningum 9,2 - 9,2 og 13,1 m².
Baðherbergi verður flísalagt bæði gólf og veggir, casella oak brown lituð innrétting með ljósri stein bekkplötu, handklæðaofn, upphengt wc og walk-in sturta með innfelldum tækjum. 
Þvottahús/snyrting verður flísalagt bæði gólf og veggir, casella oak brown lituð innrétting með ljósri stein bekkplötu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt wc.
Geymsla verður með harðparketi á gólfi og getur því nýst sem fjórða svefnherbergið. Stærð geymslu er skv. teikningum 7,7 m².
Bílskúr er skráður skv. teikningum 25,4 m² að stærð. Sér gönguhurð og rafdrifin innkeyrsluhurð. Epoxy verður á gólfi.

Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga.
 
Kaupandi greiður skipulagsgjald þegar það verður lagt á, 0,3% af brunabótamati eignar.

Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone