Lýsing
Glæsilegt hesthús við Faxaból 3a á félagssvæði Fáks í Víðidal.
Hesthúsið er 39.0 m², frábær fjölskyldueining.
✅ Rúmgóðar stíur 4.25 fm.
✅ Hugguleg kaffistofa, með baðherbergi.
✅ Frábært aðgengi að hlöðunni fyrir hey og spæni.
✅ Hnakkageymslan rúmgóð.
✅ Undi hlöðu er geymsla sem hentar fyrir geymslu á spæni.
Nánari lýsing
Vandað hesthús þar sem hesthúshlutin var gerður upp árið 2023 með 3 stíum úr ríðfríu stáli og plastborðum, hver um sig 4,25 fm að stærð og eru þar með löglegar stíur.
Fóðurgangur er lagður gummimottum en undir er steypt gólf. Hesthúsrýmið er bjart og með góðri lofræstingu / viftu.
Hnakka og heygeymsla er klædd með panel og er með hurð að aftan til þess að taka á mót heyi og spæni, þar er afar gott aðgengi.
Kaffistofan er snyrtileg, hún er klædd með panel, innangengt inn á salerni.
Kelari með malargólfi er undir kaffistofuhlutanum, hnakka og heygeymslunni. Það er góð geymsla sem hægt er að geyma spæni og fleira og er lofthæð þar c.a
160 cm ( ekki með í fermetrafjölda )
Sameginlegt gerði og skítþró fyrir framan húsið.
Nýmálað þak og timburverk frá því í sumar.
Nýjir gluggar settir í 2023
Staðsetning
Eignin er staðsett á félagssvæði Fáks. Þar eru útreiðleiðir frábærar og allt til þess að gera hestamennskuna að góðu fjölskyldusporti.
Stutt er í reiðhöll Fáks, reiðgerði, hringgerði og öll unnur mannvirki sem Fákssvæðið hefur upp á að bjóða.
Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Davíð Matthíasson, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 898-1713 / david@landmark.is
- Góð og persónuleg þjónusta
- Ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat