Lýsing
Húsið samanstendur af fjórum svefnherbergjum, stofu, borðstofu, setustofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi, anddyri og gestasalerni. Innangengt inn í bílskúrinn.
Nánari lýsing:
Anddyri er rúmgott, flísalagt með rúmgóðum skáp.
Inn af anddyri er svefnherbergi sem nýtt er í dag sem skrifstofa. Korkur á gólfi og fataskápur.
Gestasalerni á hægri hönd þegar komið er inn í íbúðina úr anddyrinu. Flísar á gólfi.
Stofa með góðri lofthæð, gegnheilt eikarparketi á gólfi, flísalagt í kringum fallegan arin sem er í góðu lagi.
Borðstofa er inn af stofu með gegnheilu eikarparket á gólfi. Fín lofthæð. Útgengt út í garð til vesturs úr borðstofunni.
Eldhús er bjart með eldri snyrtilegri innréttingu, gegnheild eikarparket á gólfi. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél. Góður borðkrókur í eldhúsinu.
Sjónvarpshol með gegnheilu eikarparketi á gólfi.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og góðri lofthæð.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu baðkari og sturtuklefa.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp og góðri lofthæð.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og stórum fataskáp og góðri lofthæð.
Þvottahús rúmgott með lökkuðu gólfi og vask. Geymsla/búr inn af þvottahúsi. Hægt er að komast upp á milliloft úr þvottahúsi.
Innangengt er úr þvottahúsi inn í rúmgóðan bílskúr.
Bílskúr er með steyptu gólfi góðri lofthæð. Bílskúrshurð er extra há (240cm) og möguleiki að koma inn jafnvel breyttum jeppa inn í bílskúrinn.
Innkeyrslan og tröppur er hellulögð og upphituð.
Fallegur garður sem var hannaður af Stanislas landslagsarkitekt. Hellulögn í kringum allt húsið. Lítill geymsluskúr í garðinum.
Fallegt fjölskylduhús með fjórum svefnherbergjum innbyggðum bílskúr og fallegum garði
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.