Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Grundartangi 42

270 Mosfellsbær

66.900.000 kr.

1.080.775 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2083579

Fasteignamat

62.550.000 kr.

Brunabótamat

39.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1981
svg
61,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna: ***ENDARAÐHÚS - SÉRINNGANGUR*** Tveggja herbergja, 61,9m2, endaraðhús með sérinngangi á þessum eftirsótta stað í Mosfellsbæ. Um er að ræða Grundartanga 42 sem skiptist svo: Anddyri, gangur, svefnherbergi, baðherbergi, stofa, eldhús og geymsla sem er innan íbúðar. Plastparket og flísar eru á gólfi. Húsinu fylgir tvö bílastæði. Örstutt er í alla helstu þjónustu og má þar nefna sem dæmi; skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, golfvöll og matvöruverslanir auk góðra og fallegra gönguleiða. Fáðu söluyfirlit hér. 
Bókaðu skoðun hjá Svavar Friðrikssyni, lgfs, í síma 623-1717 eða sendu tölvupóst á svavar@fstorg.is.

Nánari lýsing eignar.
Inngangur. Sérinngangur. 
Anddyri: Flísalagt gólf. Fatahengi og aðgengi að rafmagnstöflu.
Eldhús: Opið við stofu, snyrtileg - hvít innrétting með góðu skápaplássi. Helluborð, loftgleypir, bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi fyrir ofan vask. Eldhúsgólfið er með flísum.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt út á verönd sem snýr í suður.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi ásamt fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt gólf. Baðkar, salerni og innrétting með vaski. Tengi og aðstaða fyrir þvottavélar inni á baðherbergi.
Geymsla: Geymsla er innan íbúðar.
Bílastæði. Tvö bílastæði fylgir með íbúðinni. 
Um er að ræða steypt og vel byggt endaraðhús á þessum friðsæla og eftirsótta stað í Mosfellsbæ. Örstutt er í alla helstu þjónustu og má þar nefna sem dæmi; skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, golfvöll og matvöruverslanir auk góðra og fallegra gönguleiða.
Bókaðu skoðun hjá Svavar Friðrikssyni, lgfs, í síma 623-1717 eða sendu tölvupóst á svavar@fstorg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.


 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. feb. 2024
57.000.000 kr.
60.000.000 kr.
61.9 m²
969.305 kr.
20. des. 2019
35.150.000 kr.
35.000.000 kr.
61.9 m²
565.428 kr.
1. sep. 2006
14.850.000 kr.
17.300.000 kr.
61.9 m²
279.483 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone