Lýsing
Ath! Hlutdeildarlán er í boði fyrir þessar íbúðir!
2ja 3ja og 4ra herbergja íbúðir
Stærðir frá 67,9 fm til 123,1 fm
Verð frá 59,9 millj.
Bókaðu einkaskoðun við sýnum samdægurs - Sjón er sögu ríkari!
Anna Sigurðardóttir lgf., as@heimili.is, sími 898-2017
Gunnlaugur A. Björnsson lgf., gab@heimili.is, sími 617-5161
Brynjólfur Snorrason lgf., brynjolfur@heimili.is, sími 896-2953
Nánari lýsing:
Íbúð 0103 er 83,9 fm þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með séringangi og 22,9 fm verönd, íbúðin skiptist í anddyri, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu með útgengi út á verönd í vestur. Næg bílastæði.
Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Í opnu björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á sér verönd íbúðar sem snýr til vesturs þar sem njóta má fallegs útsýnis.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili og gluggi með opnanlegu fagi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson.
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
ATH: Myndir eru af sýningaríbúð og getur skipulag íbúðar verið annað. Efnisval á innréttingum og gólfefnum er eins í öllum íbúðum.
Suðurhella 16 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman. Í stigaganginum eru 27 íbúðir. Húsið stendur á lóð sem markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem fyrir framan hús er fjöldi bílastæða og búið að gera ráð fyrir hleðslustöðvum og á bak við hús er sameiginlegur garður með leiktækjum og sígrænum gróðri.
Fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru.
ÞBF ehf. er byggingaraðili hússins og er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki sem hefur unnið við húsbyggingar í áratugi.
Kaupandi borgar skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3 % af væntu brunabótamati eignarinnar.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.