Lýsing
Íbúðin er á 5. og efstu hæð og skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu í alrými, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Eigninni fylgir 9,1 fermetra sérgeymsla í kjallara ásamt hlutdeild í sameign. Samkvæmt HMS er birt flatarmál íbúðarinnar 112,30 fermetrar.
Nánari lýsing:
Forstofa: Lokuð forstofa með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Flísar á gólfi og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart alrými. Útgengt er út á afar stórar svalir sem liggja utan um stofuna.
Svefnherbergi I: Gott hjónaherbergi með fataskápum.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi með fataskápum.
Svefnherbergi III: Gott herbergi sem nýtist vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða skrifstofa.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með skúffum og skáp við vask, vegghengt salerni, bæði baðkar og sturta.
Þvottahús: Innan íbúðar með flísum á gólfi og góðu vinnuplássi. (það vantar mynd af þvottahúsinu)
Svalir: Mjög stórar svalir með góðu útsýni sem ná að hluta í allar áttir. Útgengt frá stofu.
Annað:
Eigninni fylgir sérbílastæði í lokuðum bílakjallara og 9,10 fermetra sérgeymsla í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu. Um er að ræða afar eftirsótta staðsetningu á Völlunum í Hafnarfirði þar sem matvöruverslun Krónan og Dominos er í göngufjarlægð og stutt er Bónus, bakarí, alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður