Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
fjölbýlishús

Rauðarárstígur 41

105 Reykjavík

84.900.000 kr.

820.290 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2011274

Fasteignamat

83.550.000 kr.

Brunabótamat

54.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1987
svg
103,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 20. janúar 2026 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Rauðarárstígur 41, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 16 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 20. janúar 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Rauðarárstíg 41, íbúð 303, 105 Reykjavík:

Um er að ræða bjarta og vel staðsetta 5 herbergja íbúð á þessum vinsæla stað í hjarta borgarinnar með stæði í bílageymslu. Íbúðin er á efstu hæð og skiptist í tvær hæðir og er birt stærð eignar 103,5 fm, en gólfflötur á efri hæð er að hluta til undir súð og er því stærri en gefið er til kynna.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX. 

Eignin skiptist í:
Neðri hæð - 64 fm: Forstofa, í alrými er stofu / borðstofu og eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, gangur og búr / þvottaherbergi. Suðvestursvalir úr stofu. 
Efri hæð - 39,5 fm: Sjónvarpshol, tvö svefnherbergi og gestasalerni. Í sameign er sér geymsla og stæði fylgir eigninni í bílageymslu. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Neðri hæð:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina af svalagangi á þriðju hæð. Rúmgóð, forstofuskápur, flísar á gólfi. 
Stofa/borðstofa: Í alrými, útgengi út á suðvestursvalir með útsýni í átt að Perlunni, flísar á gólfi. 
Eldhús: Í alrými, innrétting, eldavél og helluborð, háfur, ísskápur, flísar á gólfi. 
Svefnherbergi: Rúmgott, flísar. 
Baðherbergi: Hvít innrétting, speglaskápur, baðker, flísar á gólfi. 
Gangur: Flísar á gólfi. 
Búr/þvottaherbergi: Inn af eldhúsi, skolvaskur, hillur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, niðurfall í gólfi, flísar á gólfi. 

Efri hæð:
Sjónvarpshol: Komið er upp í rúmgott og bjart sjónvarpshol, góðir þakgluggar, geymslurými undir súð, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, fataskápur, geymslurými undir súð, parket á gólfi. 
Svefnherbergi: Rúmgott, fataskápur, parket á gólfi. 
Gestasalerni: Vaskur, speglaskápur, mögulegt er að setja sturtu, flísar á gólfi. 
Geymsla: Í sameign á fyrstu hæð er sér geymsla.
Stæðið í bílageymsluhúsi: Eigninni fylgir stæði i bílageymslu. Fjarstýrð hurðaropnun og öryggismyndavélar eru í bílageymslu. Þvottaaðstaða fyrir bíla. Átta hleðslustæði fyrir rafmagnsbíla. 
Sameign/húsfélag: Á fyrstu hæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla, þvottahús og dekkjageymsla í bílastæðahúsi. Sér húsfélag er fyrir Rauðarárstíg 41 og stórt húsfélag fyrir Egilsborgir (bílskýlisfélag). 

Húsið og lóðin: Egilsborgir er samheiti fyrir húsaþyrpingu á lóð er nær milli Rauðarárstígs og Þverholts og er sameiginlegt fyrir Rauðarárstíg nr. 35, 37, 39 og 41 við Rauðarárstíg og 20, 22, 24, 26, 28, 30 og 32 við Þverholt. Í húsinu að Rauðarárstíg 41 eru 13 íbúðir og verslunarrými, húsið er byggt 1987. Sameiginlegur fallegur garður (er ofan á þaki bílsgeymsluhússins)  er í porti á milli húsanna með leiksvæði fyrir börn. Stærð lóðar er 5617 fm. 

Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eiganda er búið að endurnýja / lagfæra eftirfarandi:
* 2023 Nýtt járn sett á þak og rennur endurnýjaðar.  
* 2023 Nýir opnanlegir þakgluggar (Velux) á efri hæð. Skipt hefur verið um aðra eftir þörfum í húsinu. . 
* 2021 Húsið var málað að utan.
* 2016 Gluggar, hurðir og járnhandrið í húsinu máluð.

Fasteignamat 2026 er kr. 83.550.000.

Góð og björt eign á eftirsóttum stað í hjarta Reykjavíkur. Miðbær Reykjavíkur og Hlemmur í næsta nágrenni. Veitingastaðir, kaffihús, söfn og ýmis afþreying er í göngufjarlægð og stutt í góðar gönguleiðir, útivistarsvæði og helstu þjónustu - Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík