Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

7

svg

7  Skoðendur

svg

Skráð  14. jan. 2026

fjölbýlishús

Fossvogsvegur 18

108 Reykjavík

335.000.000 kr.

1.385.443 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2534951

Fasteignamat

137.500.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
241,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Sigríður Rut, lgfs. gsm 699-4610  og Fasteignasalan TORG kynna: Sala er hafin á stórglæsilegu tengihúsi við Fossvogsveg 8-36 í Reykjavík. Húsið er staðsett í Fossvognum nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann á einstaklega veðursælum og fallegum stað.
Húsið er 3ja hæða. Fjórar sérhæðir eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sérlyftum. Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð. Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangegnt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð). Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu. Öllum íbúðum fylgja stæði í bílageymslu en einnig eru sameiginleg bílastæði á lóð. Íbúðirnar verða búnar vönduðum innréttingum frá Brúnás og eldhústækjum frá Ormsson.
Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S.Helgasyni. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum og sturtum með glerhlið. Innréttingar og innihurðir eru vandaðar, sjá nánar í skilalýsingu. Efri hæðirnar eru með stórum þaksvölum en hinar íbúðirnar með góðum svölum á miðhæðinni og timburverönd á jarðhæðinni.
Sameign verður frágengin utan sem innan. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum.
Áætlað er að íbúðir við Fossvogsveg verði afhentar í febrúar 2026.  Traustur byggingaraðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.  Sjá nánar inn á meðfylgjandi  söluvef  
Heimasíða 
Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja penthouse sérhæð, merkt 0203 í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Birt stærð íbúðar er skráð 241,8  fm. að stærð. 
Sérlyfta fylgir þessari íbúð sem gengur frá neðstu hæð beint upp í íbúðina.
Stórar þaksvalir.
Stæði í lokaðri bílageymslu merkt B-09 fylgir

Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut lgfs.  í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is  og
Helgi lgfs.  í gsm 780-2700 eða helgi@fstorg.is 

Nánari lýsing:
Gengið er  inn á miðhæð inn í sérstigagang, þar sem er sérlyfta.
Komið er inn í hol með góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri innréttingu frá Brúnás, borðplötum úr Virgo Quarts-steini og vönduðum eldhústækjum frá Ormsson. 
Stofur með útgengi út á stórar þaksvalir.
Hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Tvö góð svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Stigagangurinn (og lyftan) gengur frá íbúðinni og alveg niður á neðstu hæð þar sem er bílageymsla. 
Sérgeymsla er við hlið stigagangs.
Stæði í bílageymslunni fylgir

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Áætlað er að íbúðirnar verði afhentar í febrúar 2026.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á


 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone