Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

34

svg

31  Skoðendur

svg

Skráð  15. jan. 2026

fjölbýlishús

Arnarhlíð 1

102 Reykjavík

82.900.000 kr.

1.022.195 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2360735

Fasteignamat

78.950.000 kr.

Brunabótamat

54.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
81,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Fallega og bjarta þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í Arnarhlíð 1, 102 Reykjavík. Eignin er samtals 81.1 fm, vel skipulögð með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum. Eignin telur tvö svefnherbergi, eldhús, borðstofu og stofu í opnu alrými, baðherberbergi með walk-in sturtu, þvottaherbergi, geymslu innan íbúðar, geymsla í sameign og sameiginleg hjóla-og vagnageymsla sameign. Húsinu fylgir bílastæði með aðgangstýringu fyrir íbúa hússins ásamt helðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla. 

Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Forstofa: Snyrtileg forstofa með fataskáp sem nær upp í loft. Ljóst harðparket á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa: Eru í björtu opnu alrými, gólfsíðir gluggar, falleg og vönduð hvít eldhúsinnrétting sem nær alveg upp í loft. Hvít steinborðplata, innbyggður ísskápur, innbygð uppþvottvél og bakaraofn í vinnuhæð. Eldhúseyja með keramik helluborði og hvítum háfi. Ljóst harðparket á gólfi. Útgengt á svalir sem snúa til suð-austurs.
Svefnherbergi I: Rúmgott með hvítum fataskápum sem ná upp í loft. Gólfsíður gluggi og ljóst harðparket á gólfi.  
Svefnherbergi II: Rúmgott með hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Gólfsíður gluggi og ljóst harðparket á gólfi.  
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni, walk-in sturtu, fallegri hvítri baðinnréttingu og handklæðaofni.Ljósar flísar í hólf og gólf.
Þvottahús: Sér rými innan íbúðar, hvít innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ljósar flísar á gólfi. 
Geymsla innan íbúðar: Geymsla innan þvottahús með fataslám. Ljósar flísar á gólfi. 
Geymsla í sameign: Sér 3 fm geymsla í sameign með mikilli lofthæð. 
Sameign: Fernar sameiginlegar svalir, tvær stórar svalir sem snúa í norð-vestur með garðhúsgögnum og grilli, einar svalir sem snúa í suð-austur og einar í norð-vestur. Bílastæði með aðgangsstýringu. Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla eru á bílastæðinu.
Húsið er staðsteypt á fjórum hæðum, einangrað að utan og klætt með sléttri álklæðningu ásamt lerkitimburklæðningu.

Falleg og vönduð eign á vinsælum stað á Hlíðarenda þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði Vals og alla helstu þjónustu. Náttúruperlur eins og Öskjuhlíðin og ylströndin í Nauhólsvík, eu í göngufæri. 

Vakin er athygli á að eigandi fasteignarinnar fellur undir lagaákvæði er snýr að tengslum við fasteignasala skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015, lög um sölu fasteigna og skipa.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. feb. 2019
46.350.000 kr.
52.900.000 kr.
81.1 m²
652.281 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone