Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
svg

129

svg

104  Skoðendur

svg

Skráð  15. jan. 2026

lóð

Kýrholt 2

311 Borgarnes

1.650.000 kr.

279 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2315915

Fasteignamat

2.170.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
5919 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) kynnir til sölu Kýrholt 2 – Sumarhúsalóð í Galtarholti, 311, Borgarbyggð.
  • Lóðarstærð: 5.919 m²
  • Landnúmer: L201417
  • Frístundarsvæði sem nær yfir 276,5 ha

Falleg og vel staðsett sumarhúsalóð í frístundabyggðinni Galtarholti, aðeins rúmlega klukkustund frá Reykjavík. Lóðin er í kyrrlátu og grónu umhverfi í holtadragi milli Grafarflóa og Múrhlíðar, með góðu aðgengi eftir Kýrholti. Svæðið er skipulagt fyrir frístundabyggð og býður upp á fjölbreytt útivistartækifæri og nálægð við náttúrufegurð Vesturlands.
Lóðin er óbyggð og hentar vel þeim sem vilja reisa sitt eigið sumarhús samkvæmt gildandi skipulagi Galtarholts, sjá deiliskipulag á skipulagsstofnun.is.

Markmið deiliskipulags er:
  • að mynda frístundabyggð sem fellur vel að umhverfinu með aðgengi að fjölbreyttri útivist
  • að mannvirki, lóðamörk, vegir, bílastæði, göngustígar og reiðleiðir séu ein lítið áberandi og frekast er kostur
  • að röskun á landi verði í lágmarki
  • að tryggja gott aðgengi gangandi fólks um skipulagssvæðið
  • að auka ferðaþjónustu og útivistarmöguleika á svæðinu

Helstu kostir:
  • Skipulagt frístundasvæði í fallegu hraun-, kjarr, og holtalandslagi
  • Gólfvöllur og ýmis þjónusta samkvæmt samþykktu deiliskipulagi
  • Miklir möguleikar varðandi veiðileyfi og hestamennsku
  • Góð aðkoma og greiðfærir vegir
  • Nálægt Borgarnesi og fjölbreyttri þjónustu og afþreyingu

Landið er leigulóð og selst í því ástandi sem það er við skoðun og afhendist við kaupsamning. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is eða gera tilboð hér Fasteignasala og leiga | FSRE

Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess

Framkvæmdasýslan Ríkiseignir

Borgartún 26, 105 Reykjavík
phone

Framkvæmdasýslan Ríkiseignir

Borgartún 26, 105 Reykjavík
phone