Upplýsingar
Byggt 1931
81,6 m²
4 herb.
2 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Íbúð 101 í Bergþórugötu 37 er vel skipulögð þriggja til fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð hússins, birt stærð séreignar samkvæmt fasteignamati er 81,6 fermetrar sem skiptist í 61,7 fermetra íbúð, 10 fermetra herbergi á sömu hæð og íbúðin með inngangi beint frá stigapalli, og 9,9 fermetra geymslu í kjallara. Geymsla í kjallara hefur verið nýtt sem herbergi, með aðgangi að snyrtingu og sturtu í kjallaranum. Íbúðin sjálf er vel skipulögð, en breytt frá upphaflegum teikningum með þeim hætti að eldhús hefur verið fært inn í það rými sem á teikningu nefnist borðstofa, og þannig fá nýtt svefnherbergi þar sem eldhúsið var. Í íbúðinni sjálfri eru þess vegna tvö herbergi, eitt á stigapalli hæðarinnar utan íbúðar, og mögulega fjórða herbergið sem nýta má í kjallara. Innréttingar, gólfefni og tæki eru í ágætu ásigkomulagi en um það bil 30 ára gamalt. Mjög sjarmerandi og frábærlega staðsett eign, rétt við Hallgrímskirkju og Sundhöll Reykjavíkur, sem nýtist mjög vel.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.
Húsið er steinsteypt, tvær hæðir og kjallari, með tveimur íbúðum, einni á hvorri hæð. Í sameign í kjallara eru gangur, þvottahús og þurrkkerherbergi, "vinnustofa, " stigahús og sameiginlegt þakrými. Að sögn eigenda er nýlega búið að skipta um járn og pappa á þaki ásamt þakrennum. Í þvottahúsi í kjallara er búið að útbúa salernis- og sturtuaðstöðu sem íbúar í herbergjum í kjallara hafa aðgang að.
Í fyrstu hæð, þar sem íbúðin er staðsett, er gegnið inn í eitt svefnherbergi af stigapalli; herbergið er ágætlega rúmgott með glugga í átt að Bergþórugötunni. Innan íbúðar er komið inn í hol þaðan sem gengið er í önnur rými íbúðarinnar. Til vinstri flísalagt baðherbergi, veggir og gólf, með sturtuklefa í horni, innréttingu með innfeldum vaski og spegilskáp yfir vaski. Svefnherbergin eru tvö innan íbúðar, bæði með glugga í átt að garði, hjónaherbergi með fataskáp á heilum vegg og minna herbergi þar sem áður var eldhús. Eldhúsið hefur verið fært inn í borðstofuna, og opnað á milli borðstofu og stofu svo úr verður bjart og notalegt samtengt rými sem með tveimur inngöngum úr holi íbúðarinnar. Eldhúsinnrétting er ágætlega rúmgóð með góðu vinnuplássi en rýmið er allt mjög bjart og skemmtilegt. Innréttingar íbúðarinnar, gólfefni og tæki eru um 30 ára gamlar en í ágætu ástandi. Eldra parket er á öllum gólfum, nema flísar á baði.
Í kjallara er eitt íbúðarherbergi með aðgengi að klósetti og sturtuaðstöðu, þvottahús og þurrkherbergi ásamt geymsluplássi, en tvö herbergi í kjallara eru skráð í sameign íbúðanna. Gengið er úr þvottahúsi út í bakgarð hússins, þar sem eru þvottasnúrur. Í garið er óskráður geymsluskúr.
Þak var yfirfarið og viðgert á árinu 2023, að sögn seljenda.
Skemmtilega skipulögð eign, frábærlega staðsett.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook