Lýsing
Eignin er staðsett innan Ártúnshöfða-Elliðaárvogs, sem er stærsta þróunarsvæði Reykjavíkur fyrir blandaða byggð íbúða og þjónustu. Rammaskipulag fyrir svæðið var staðfest árið 2017 og í framhaldi verið unnið að deiliskipulagi fyrir minni áfanga á svæðinu. Deiliskipulagssvæðið er austan við ósa Elliðaáa. Malarhöfðinn, sem er hluti af Ártúnshöfða, er eins konar háslétta og einkennist af miklum landhalla frá Bíldshöfða niður til norðurs í átt að framtíðarlegu Borgarlínu. Frekari upplýsingar um stöðu skipulagsvinnunnar á svæðinu má nálgast hér á skipulagsgátt.
Nánari lýsing:
Heildarstærð eignarinnar er 1962,1 fm. en tvær fasteignir standa á lóðinni, annars vegar í 1662,2 fm. iðnaðar- og verslunarhúsnæði, og hins vegar í 300 fm. vörugeymslu. Heildareignin er í dag nýtt undir rekstur Blikksmiðsins hf., en hún verður laus til afhendingar síðar á þessu ári.
Eignin stendur á góðum stað, með góðri aðkomu og getur hentað undir ýmiskonar starfsemi í dag
Frekari upplýsingar hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.