Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vista
svg

3252

svg

2529  Skoðendur

svg

Skráð  19. jan. 2026

fjölbýlishús

Kristnibraut 49

113 Reykjavík

105.900.000 kr.

775.824 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2260243

Fasteignamat

83.800.000 kr.

Brunabótamat

64.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
136,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

SELD    
NÝTT Í SÖLU –  GLÆSILEG EIGN Í SÉRFLOKKI.

Domusnova og Sölvi Sævarsson lgf, kynna í sölu: Einstaklega glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt bílskúr á góðum stað við Kristnibraut 49. Íbúðin var öll endurnýjuð árið 2022 á glæsilegan máta og var mikið lagt í rafmagn, lýsingu og innréttingar. Staðsetning húsins og íbúðar er mjög góð með óhindruðu útsýni að Snæfellsjökli og í Esjuna. Svalir snúa í vestur og er leyfi fyrir svalalokun.
 
  • Free@home hússtjórnunarkerfi og vandað rafmagnsefni.
  • Niðurtekinn loft með innfelldri og óbeinni lýsingu í alrými og á baði.
  • Nýlegar innréttingar í eldhúsi, borðplötur úr stein frá S. Helgasyni.
  • Glæsilegt baðherbergi, vandaðar flísar og handlaug og borð úr stein frá S.H.
  • Innfelld vönduð tæki við sturtu og innfelld lýsing á baðherbergi.
  • Gólfefni – Vandað eikarparket frá Parka.
 
Íbúðin er alls 136,5 m² íbúðin er 113,2 m²með geymslu og bílskúr er 23,3 m² skv. Þjóðskrá Íslands.  

Skipulag í búðar:
Íbúðin er stór 3ja herbergja með rúmgóðu opnu björtu alrými með gluggum á tvær hliðar með miklu útsýni. Íbúðin skiptist í opið anddyri, alrými sem er eldhús, borðstofa og stofa, hjónaherbergi, barnaherbergi, rúmgott baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Sér bílskúr og góð geymsla í sameign. Sameign er nýmáluð og með nýjum teppum.

--- VIRKILEGA VÖNDUÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA. ---

Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is 

Nánari lýsing:
Anddyri/hol – Opið anddyri með nýlegum flísum (2022) frá Álfaborg á gólfi og nýlegur (2022) hvítur háglans Ikea fataskápur sem nær að lofti.
Þvottahús – Inn af anddyri með nýlegri (2024) hvítri háglans innréttingu með góðu skáparými og hengi frá Ikea og rými fyrir þvottavél og þurkara í góðri vinnuhæð. Vandaðar flísar á gólfi.
Baðherbergi – Allt endurnýjað árið 2022, Veggir og gólf er flísalagt vönduðum flísum frá Álfaborg. Innrétting er hvít háglans frá Fríform með vandaðri handlaug og borðplötu úr stein frá S. Helgasyni. Walk inn sturta með innbyggðum blöndunartækjum í vegg og sturtuhaus frá Grohe, litað dökkt glerþil frá Ispan við sturtu, sérsmíðaður spegill frá Ispan ofan við innréttingu með baklýsingu upp og niður.  Innfelld lýsing í lofti og óbein lýsing við sturtu. Svartur handklæðaofn á baðherbergi.
Alrými – Eldhús, borðstofa og stofa
Eldhús – Eldhús var allt endurnýjað á glæsilegan hátt 2022, vönduð hvít háglans innrétting með góðri eyju með miklu skápaplássi. Innbyggður stór ísskápur og frystiskápur í innréttingu. Góður tækjaskápur með hillum fyrir ofan og fellihurð fyrir. Borðplata úr stein frá S. Helgasyni með niðurfeldu spanhelluborð og undirfeldum vask. Innbyggð uppþvottavél í innréttingu í eyju. Vönduð innfelld lýsing í eldhúsi. Eikarparket á gólfi.
Borðstofa og stofa – Rúmgóð borðstofa með skápaplássi í eldhúseyju sem snúa að borðstofu. Eikarparket á gólfi og hurð út á rúmgóðar vestursvalir með einstöku útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og í vestur að Snæfellsjökli. Stofurými er stórt og rúmgott. loft í stofu og alrými eru niðurtekinn gipsloft með hljóðeinangrun að hluta í lofti og skuggafúgu við vegg með óbeinni lýsingu. Innfelld lýsing í loftum í alrými og á gangi íbúðar tengdar Free@home hússtjórnunararkefi. Vandað eikarparket er á gólfi stofu og alrýmis.
Barnaherbergi – Rúmgott 10,4 m² barnaherbergi með eikarskápum og eikarparketi á gólfi. Loft í herbergi eru niðurtekinn, gipsklædd með lítilli skuggafúgu við veggi. Gott útsýni úr herbergi í norðvestur.
Hjónaherbergi –  Ágætlega rúmgott 14,9 m² hjónaherbergi með góðum fataskápum úr eik. Eikarparket á gólfi og gipsklædd loft með skuggafúgu við veggi. Gott útsýni úr herbergi.
Innréttingar og gólfefniAllar innréttingar og gólfefni er endurnýjað 2022. Vandað olíuborði eikarparket frá Parka á allri íbúð að undanskildu baði, þvottahúsi og anddyri þar eru vandaðar flísar frá Álfaborg. Allar hurðar eru hvítar yfirfelldar frá 2022. Eldhús- og baðinnrétting eru hvítar háglans með ljúflokun á skúffum og skápum. Vandaðar steinborðplötur frá S. Helgasyni á borðum í eldhúsi og á baði. 
Bílskúr - Á jarðhæð með fjarstýrðri rafmagnsopnun á hurð. Flísar á gólfi og skápar í enda bílskúrs. Heit og kalt vatn í bílskúr og skolvaskur á vegg. 
Sameign  – Góð sér geymsla er á jarðhæð og hjólageymsla þar sem farið er að bílskúr á vesturenda hússins. 
Stigahús í sameign, er verið að endurnýja í byrjun árs 2026, veggir og loft nýmáluð og ný teppi í sameign.
 
Upplýsingar frá eiganda með helstu endurbætur og búnað sem framkvæmdar voru árið 2022:
• Free@home hússtjórnunarkerfi til að stýra lýsingu, nýir rofar og tenglar (2022)
• Rafport, tenglar og rammar af gerð busch Jager, rofar, töfludimmar og rofaliðar af gerð ABB Free@home
• Hægt að stýra lýsingu í síma hvar sem er hvenær sem er og einnig breyta eftir þörfum notenda hverju sinni. 
• Niðurtekin gipsloft í alrými og baðherbergi (2022) Ný innfelld loftlýsing í niðurteknum loftum frá S. Guðjónssyni (2022)
• Óbein lýsing í stofu og á baðherbergi
• Nýjar háglans IKEA eldhúsinnréttingar (2022)  og nýjar steinborðplötur í eldhúsi frá S. Helgasyni.
• Baðherbergi tekið í gegn (2022) Flísar frá Álfaborg, baðinnrétting frá Fríform, steinvaskur og steinplata smíðað af S. Helgasyni (2022) innfelldum     blöndunartækjum við sturtu, gler í sturtu frá Íspan og sérsmíðuðum spegli frá Ispan með baklýsingu upp og niður.
• Ný gólfefni: hvíttuð olíuborið eikarparket og hvítir gólflistar allt frá Parka.
• Nýjar hurðir frá Agli Árnasyni (2022) Ný brunahurð (inn í íbúð) frá Byko (2022)
• Flísar á forstofu og þvottahúsi frá Álfaborg (2022)
• Nýir fataskápar í anddyri frá IKEA (2022) Ný innrétting í þvottahúsi frá IKEA (2024)
Eldhús og tæki:
• Nýleg IKEA eldhúsinnrétting með tækjaskáp
• Heill innfelldur ísskápur bosch og heill Electrolux frystiskápur.
• Bakaraofn og combi-ofn frá AEG. Spanhelluborð frá AEG
• Uppþvottavél frá Electrolux
• Svartur, undirlímdur stálvaskur í steinborðplötu í eldhúsi.
• Grohe svartgrá blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi.
Sameign og ytra byrði:
• Þak og gluggalistar og svalarhurð málað að utan (2022)
• Steinfletir utanhús málaðir og eða sílanbornir (2022)
• Skipt um dyrasíma og settur mynddyrasími (2024)
• Hleðslustöðvar fyrir utan blokk (2024)
• Stigagangur málaður og handrið, ný ljós skipt um teppi (2026)   Núverandi framkvæmdir í stigagangi samkvæmt húsfélagsyfirlýsingu eru greiddar af seljanda.
 
Nánasta umhverfi: Örstutt í skóla og leikskóla. Stutt í verslun, Krónuna og þjónustu við Vínlandsleið.  Stutt í góðar göngu- og hjólaleiðir og  útivist. Mjög góðar göngu- og hjólaleiðir eru við Reynisvatn og næsta nágrenni. 

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 67.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. apr. 2022
53.350.000 kr.
73.500.000 kr.
136.5 m²
538.462 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone