Lýsing
Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð sem samanstendur af þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu, eldhúsi, baðherbergi ásamt geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Komið er inní anddyri/gang með eikarparket á gólfi.
Stórt hjónaherbergi á hægri hönd, með eikarparket á gólfi og stórum fataskáp. Útgengt út á svalir til suðvesturs.
Barnaherbergi á vinstri hönd með stórum lausum skápum. Eikarparket á gólfi. Áður var þetta eldhúsið sem hefur verið fært nær stofunni.
Barnaherbergi við hlið hjónaherbergis með eikarparket á gólfi,
Rúmgóð stofa með tveimur inngöngum bæði frá gangi og frá eldhúsi. Eikarparket á gófli.
Eldhús með góðri innréttingu, flísar milli efri og neðri skápa. Pláss fyrir uppþvottavél í innréttingunni. Góður borðkrókur.
Baðherbergi er nýlega tekið í gegn, flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofn og "walk-in" sturtu.
Aðeins þrjár íbúðir eru í húsinu.
Snyrtileg sameign, með sameiginlegu rúmgóðu þvottahúsi og sér geymslu.
Í garðinum er um 15fm. geymsluskúr sem er nýttur til að geyma hjól og vagna.
Fallegur og skjólgóður garður til suðvesturs.
Skipt var um þak 2015/2016 og rennur endurnýjaðar 2016.
Hverfið liggur mjög nálægt miðborg Reykjavíkur, sem gerir stutt í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningu.
Möguleiki að ganga eða hjóla í vinnu. Vegna nálægðar við Hringbraut og aðrar stórar samgönguæðar er auðvelt að komast um borgina og í nágrenni eru góðar almenningssamgöngur.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala, sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.