Lýsing
Eingin er skrá skv. Þjóðskrá Íslands alls 91fm. og þar af er herbergi/geymsla í kjallara 16,9fm.
Nánari lýsing:
Gengið er inn sameiginlegan inngang með efri hæðinni.
Anddyri/hol með parketi á gólfi.
Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, ofni í vinnuhæð, helluborði, gufugleypi, eldhúskrók og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á sólpall og þaðan út í garð hússins. Hægt er að bæta við herbergi með því að breyta borðstofu í herbergi.
Hjónaherbergi rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf.
Herbergi í kjallara mjög rúmgott með nýjum glugga og parketi á gólfi. Herbergið er skv. teikningum skráð sem geymsla.
Salerni í kjallara er í sameign.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara með íbúð á efri hæð. Hvor íbúð með sínar vélar.
Geymsla í sameign þar sem eignarhlutfall er helmingur af rýminu.
Bílastæði eru sameiginleg í enda götunnar.
Garður er stór og er í sameign.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.