Lýsing
Nánar um eign:
Forstofa: gengið er af snyrtilegum stigapalli inn í forstofu með skápum, sem er opin að stofu og borðstofu.
Stofa/Borðstofa: eru í björtu og fallegu rými, með glugga á tvo vegu og útgengi á sólríkar suður svalir.
Eldhús: er hálfopið við borðstofu. Hvít snyrtileg innrétting, gott skápapláss og vinnurými, stæði fyrir uppþvottavél. Innbyggður ísskápur. Bjart og gott rými með góðum glugga.
Herbergi I: Mjög rúmgott og bjart herbergi, með góðum skápum. Parket á gólfi.
Herbergi II: ágætt herbergi, með snyrtilegum gólfdúk.
Herbergi III: rúmgott herbergi, með útgengi á svalir til austurs. Snyrtilegur gólfdúkur.
Baðherbergi: er nýstandsett(2023) á einstaklega smekklegan máta. Allt endurnýjað. Gólfhiti. Upphengt salerni, handklæðaofn. Nett skúffuinnrétting undir handlaug og innfelldur speglaskápur fyrir ofan. Walk-inn sturta með glerskilrúmi. Flísalagt í hólf og gólf. Opnanlegur gluggi.
Sameign: Í sameign í kjallara er þvottahús og hjólageymsla sem er sameiginlegt með íbúðunum fjórum í stigaganginum. Upphitaður göngustígur framan við húsið.
Bílastæði: á lóðinni eru 30 bílastæði og þar að auki fjögur hleðslustæði sem tilheyra húsinu.
Hér er um að ræða einstaklega fallega og vel hannaða íbúð í þessu vinsæla húsi teiknuðu að Sigvalda Thordarsyni þar sem snertifletir við glugga nágranna eru í lágmárki og tekist hefur að skapa sérbýlistemmningu í fjölbýli og aðeins ein íbúð er á hæð í stigagangi. Birt stærð eignarinnar er 110,7 fm, þar af er íbúð 103,5 fm og geymsla í kjallara 7,2 fm.
Hverfið er mjög fjölskylduvænt með fjölda leik-og grunnskóla ásamt menntaskóla. Öskjuhlíð með sýna ósnortnu náttúru í göngufæri sem og Klambratúnið með góðum útivistarsvæði og kaffihúsi.
Framkvæmdir og viðhald:
2021 Frárennslislagnir fóðraðar.
2022 Parket á stofu, borðstofu og eldhúsi endurnýjað.
2023 Endurbætur á ytra byrði hússins. Steypuviðgerðir, hús og gluggar málað.
Á síðastliðnum árum hefur stærstur hluti glugga í húsinu verið endurnýjaður ásamt svalahurðum.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.