Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Vista
fjölbýlishús

Laugateigur 40

105 Reykjavík

128.700.000 kr.

680.952 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019408

Fasteignamat

120.800.000 kr.

Brunabótamat

103.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1947
svg
189 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignin er SELD - Með fyrirvara!

EINSTÖK EIGN - 7 HERB. HÆÐ OG RIS Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ - 105 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands (HMS) er birt flatarmál eignarinnar 189,0 fm.

Um er að ræða miðhæð og ris í steinsteyptu 4ra íbúða parhúsi byggðu árið 1947. Aðalhæðin er skráð 108,9 fm. rými í kjallara 37,2 fm. og risið 42,9 fm., en mikið gólfpláss er þar óskráð.
Gengið er inn í góða forstofu, þar er hægt að ganga niður í kjallara hússins, en þar er þvottahús og geymslur. Inn af forstofunni er gott hol, til vinstri er gengið inn í eldhúsið en til hægri er baðherbergið og eitt svefnherbergi, stigi upp á rishæðina er í holinu. Beint inn af holinu eru stofurnar, en þær eru þrjár, mjög rúmgóðar. Búið er að byggja við húsið og setja stóra sólstofu en úr henni er innangengt í eldhúsið og stofurnar. Undir sólstofunni er góð sér geymsla. Í risinu eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, hol og baðherbergi. Eignarhluti íbúðarinnar í heildarhúsinu Laugateigur 38-40 er 35,05% í húsinu.

Neðri hæð:
Forstofa/Hol: Flísar á forstofu, parket á holinu og stigi upp til rishæðar.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápaplássi, inngangur á tvenna vegu, korkflísar á gólfi og span helluborð, pláss fyrir uppþvottavél.
Stofur: Bjartar og rúmgóðar þrjár stofur með sólstofunni sem er flísalögð, en hinar eru parketlagðar, útgangur er út á svalir sem eru með stiga niður í bakgarðinn. Einnig er útgangur úr sólstofunni í garðinn.
Baðherbergi: Endurnýjað og flísalagt, walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Góðir efri skápar og undir handlaug.
Svefnherbergi: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með góðu skápaplássi.
Rishæð:
Svefnherbergi/Hol: Þrjú rúmgóð og parketlögð svefnherbergi og er gott skápapláss í hjónaherberginu, mjög gott tölvu- og/eða vinnusvæði í holinu með parketi.
Baðherbergi: Baðkar og flísalagt með litlum skáp undir handlaug.

Garðhýsi í garðinum fylgir íbúðinni, en er ekki sérstaklega þinglýst séreign.
Í kjallara eru geymslur og þvottahús, ásamt litlum forstofugangi og þvottahúsi.

Samkvæmt eiganda hefur húsinu verið vel við haldið, en í kringum árið 1995 var skolp og drenlagnir endurnýjaðar. Árið 2005 var sólstofan byggð við húsið ásamt kjallar undir henni. Árið 2023 var þakið á húsinu endurnýjað. Síðustu tvö ár hefur töluverð endurnýjun átt sér stað, en skipt var um parket á efri hæð, gluggar og hurðir málaðar, stigi gerður upp, skipt um ofna, andyrir flísalagt og baðherbergið á aðalhæðinni endurnýjað.

- Garðhýsi í garðinum fylgir íbúðinni, en er ekki sérstaklega þinglýst séreign.
 - Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
 - Hitalögn í stétt frá götu og við húsið.

Um er að ræða fallega íbúð í snyrtilegu umhverfi, stór sameiginlegur garður er á baklóðinni og gróið umhverfi, í göngufjarlægð er leikvöllur, leikskóli, skóli, sundlaug og ýmis þjónusta.
Stutt í útivistarsvæðið í Laugardalnum og frábærar göngu- og hlaupaleiðir á Laugarnestanganum.


Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

img
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. des. 2023
84.150.000 kr.
96.000.000 kr.
189 m²
507.937 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík