Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 3

102 Reykjavík

85.425.000 kr.

766.831 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532602

Fasteignamat

92.800.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
111,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Svalir

Lýsing

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 3 – Íbúð 207.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup.

Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending hafin.

S8-Sameign í boði:

  • Þú fjármagnar 75% — 85.425.000 kr. (lágmark 75%)
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (8.542.500 kr.)
  • Nýtir þú kauprétt innan 3 ára færðu leigugreiðslur endurgreiddar
  • Nánari upplýsingar á s8.is/joint

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.

Gegnumlýst 4ja herbergja íbúð á 2. hæð (austur/vestur), 111,4 fm (þar af 9,2 fm geymsla í kjallara). Íbúðin skiptist í anddyri/gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, hjónaherbergi með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og sérstakt þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mjöll 2.

Í anddyri/gangi er góður fataskápur. Bjart alrými með eldhúsi með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á svalir (vestur). Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi með fataskápum og útgengi á svalir. Tvö björt svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Þvottaherbergi inn af baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla í kjallara (0037). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 113.900.000 kr.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: Íbúðir

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone
Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone