Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1999
221 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Laxalind 11, Kópavogi - Glæsileg parhús á útsýnisstað í Lindunum.
Glæsilegt parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Laxalind í Kópavogi. Húsið er skráð 197,2 m2 og bílskúr 23,8 m2, alls 221 m2 skv. fasteignaskrá HMS.
Húsið er steinhús byggt árið 1999. Verönd er framan við hús og einnig er verönd í garði.
Gengið er inn á efri hæð frá götu. Þar er gott anddyri, gestasalerni, stofa og opið eldhús. Á neðri hæð eru 3 rúmgóðum svefnherbergi, hol, glæsilegt stórt baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Lýsing: Anddyri er með gólfhita, náttúrusteini á gólfi og góðum fataskápum.
Stofa er með gólfhita, náttúruflísum á gólfi, góðum gluggum og glæsilegu útsýni yfir Kópavogsdalinn og út á haf. Útgengt á svalir. Í stofu er sjónvarpshorn. Granít er í sólbekkjum við glugga.
Eldhús er opið inn í stofu. Þar er falleg innrétting með granít borðplötu. Í innréttingu er bakaraofn og örbylgjuofn frá Miele. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél. Eyja er frístandandi og í henni er Miele helluborð. Háfur er yfir eyju. Inn af eldhúsi er búr/vinnuaðstaða og þar er auka vaskur.
Gestasalerni er á efri hæði, upp hengt salerni með innbyggðum kassa og handlaug. Á gólfi eru náttúruflísar og hiti undir þeim.
Stigi á milli hæða er með fallegu handriði, náttúru flísum á gólfinu og á palli er ofn. Þá er glæsilegur gluggi í stigagangi á milli hæða.
Á neðri hæð er komið í gott hol með hita í gólfi og náttúruflísum. Þaðan er gengið inn í svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Geymsla er inn af þvottahúsi.
Hjónaherbergi er með náttúruflísum á gólfi og gólfhita. Góðir fataskápar eru á heilum vegg. Útgengi er á verönd úr hjónaherbergi. Granít er í sólbekkjum við glugga.
Barnaherbergi 1 er með náttúruflísum á gólfi og gólfhita. Góður fataskápur. Útgengi er á verönd úr þessu herbergi. Granít er í sólbekkjum við glugga.
Barnaherbergi 2 er með náttúruflísum á gólfi og gólfhita. Góður fataskápur. Granít er í sólbekkjum við glugga.
Baðherbergi er stórt og glæsilegt. Þar er frístandandi baðkar og flísalögð sturta. Öll blöndunartæki eru innbyggð Hansa tæki frá tengi. Upp hengt salerni með innbyggðum kassa.
Þvottahús með innréttingu með vinnuborði og vaski. Skápar eru á einum vegg, náttúruflísar á gólfi og hiti í gólfi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsla er inn af þvottahúsi og þar eru náttúruflísar á gólfi (athugið ekki gólfhiti).
Bílskúr er með heitu- og köldu vatni. Þar er vinnuborð með vaski og hillur á veggjum.
Í húsinu er varmaskiptir á neysluvatni, hleðslustöð fyrir rafbíla og þriggja fasa tengill í bílskúr. Að auki eru sömu náttúruflísarnar á öllum rýmum íbúðarhlutans. Hitastýring á gólfhita er frá Salius (Homepage - Salus) og því er hægt að stýra á skynjurum eða með appi í síma. Hiti er í hluta af bílaplani, en bílaplanið rúmar um það bil 3 til 4 bíla.
Stutt er í ýmsa þjónustu og afþreyingu í Smáralind, á Smáratorgi og á Dalvegi.
Upplýsingar veitir Runólfur Gunnlaugsson viðsk.fr. lögg.fast. á Höfða s. 8927798 runolfur@hofdi.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. feb. 2021
87.000.000 kr.
112.100.000 kr.
221 m²
507.240 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026