Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
116,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Stórglæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 13. hæð (næst efstu) í nýlegu, vel staðsettum nýlegum íbúðarturni í Smárahverfinu í Kópavogi. Gólfhiti. Gólfsíðir gluggar. Loftskiptikerfi. Mikil lofthæð. Stórbrotið útsýni - sjón er sögu ríkari! Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðinni.Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 1304 við Silfursmára 2, 201 Kópavogi, F2520305. 3ja herbergja íbúð á 13. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 116,1 fm, þar af er íbúðarrými 106,6 fm og sérgeymsla er 9,5 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, opið eldhús og stofu í stóru alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús. Sérgeymsla í kjallara. Íbúðin er mjög nýleg og öll hin snyrtilegasta að innan. Vandaðar innréttingar, fallegt parket á gólfum. Gólfhiti. Loftskiptikerfi. Flísar á baðherbergi og í þvottahúsi. Tvö bílastæði í bílageymslu (jafnvel pláss fyrir þriðja bílinn).
*** Sækja söluyfirlit ***
Nánari lýsing eignar:
Anddyri, með góðum fataskápum og innbyggðum bekk, parket á gólfi.
Eldhús er opið með stórri innréttingu með eldhúseyju. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens Studio Line, tveir ofnar, helluborð með innbyggðum gufugleypi. Innbyggð AEG uppþvottavél. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Vínkælir. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð, opin og björt með stórum gólfsíðum gluggum. Parket á gólfi. Útgengt er á austur svalir úr stofu. Möguleiki er á svalalokun.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu með skúffum og spegla efri skápum. Handlaug. Walk-in sturta. Upphengt salerni. Flísar í hólf og gólf. Gólfhiti eins og í öðrum rýmum íbúðar en einnig handklæðaofn.
Sérgeymsla (9,5 fm) er í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara hússins.
Tvö bílastæði í bílageymslu í kjallara hússins, annað er með uppsettri hleðslustöð. Stæðin eru hlið við hlið með mjög góðu plássi á milli svo þriðji bíllinn rúmast jafnvel á milli þeirra.
Fasteignamat 2026 = 93.500.000 kr.
Hiti er sameiginlegur samkvæmt hlutfallstölu. Eignin er kynt með gólfhitakerfi í öllum rýmum en auk gólfhita er jafnframt handklæðaofn á baðherbergi. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina. Loftskiptikerfi er í íbúðinni. Mikil lofthæð.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. júl. 2024
65.950.000 kr.
129.900.000 kr.
31304 m²
4.150 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026