Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Efstaland 20

108 Reykjavík

72.900.000 kr.

904.467 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2036724

Fasteignamat

72.300.000 kr.

Brunabótamat

48.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1968
svg
80,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 5. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Miklaborg kynnir:


Til sölu 80,6 fm fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð (2. hæð frá stigainngangi) miðsvæðis í Fossvoginum með sérmerktu bílastæði ásamt sérgeymslu, sameiginlegu þvottahúsi í kjallara auk hjóla- og vagnageymslu.


Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi (búið er að sameina tvö herbergi), gang, baðherbergi og suðursvalir.

Parket er á alrými, herbergjum og í stofu, flísar á baðherbergi og korkur á eldhúsgólfi.

Nánari lýsing


Íbúðin er staðsett miðsvæðis í Fossvoginum í barnvænu og vinsælu hverfi, stutt frá allri helstu þjónustu, skólum, leikskólum og útivistarsvæðum. Um er að ræða 80,6 fm íbúð á efstu hæð hússins, 3. hæð til hægri (2. hæð ef talið er frá stigainngangi hússins). Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni ásamt sérgeymslu. Íbúðin er að mestu leyti í upprunalegu ástandi frá byggingu, með upprunalegum eldhúsinnréttingum, skápum, baðherbergi og parketi. Nýlega hefur verið skipt um glugga- og svalahurð suðurmegin við húsið.


Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, gang, baðherbergi og svalir.

Forstofa er parketlögð og tengist gangi þar sem er tvöfaldur fataskápur.

Eldhúsið er með kork á gólfi, helluborði, ofni, viftu og stálvaski og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.

Stofan er rúmgóð, parketlögð og þaðan er útgengt á suðursvalir sem njóta góðrar birtu.

Hjónaherbergið er með harðparketi og sexföldum fataskáp.

Hin tvö herbergin eru einnig með harðparketi og hafa verið sameinuð í eitt rými, en auðvelt er að breyta aftur í tvö herbergi ef óskað er.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er standandi salerni, baðkar, vaskur, innrétting og vifta.


Í sameign er hjóla- og vagnageymsla, sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla. Sérgeymslan sem fylgir íbúðinni er með máluðu gólfi, hillum og glugga. Íbúðin býður upp á mikla möguleika fyrir nýja eigendur til að endurnýja eftir eigin smekk á eftirsóttum stað í Fossvoginum. Búið er að koma upp rafhleðslustöð fyrööö.


Búið er að endurteikna upp lóðarmörk, leggja nýjar raflagnir og setja upp bílhleðslustöðvar.
Búið er að endurnýja glugga á suðurhlið hússins en fyrirhugaðar framkvæmdir eru vegna gluggaskipta á norðurhlið hússins.


Íbúðin er laus til afhendingar strax við Kaupsamning.


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Gonnigan Daníelsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 897-1161 / gudrun@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík