Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
raðhús

Álfkonuhvarf 1

203 Kópavogur

149.900.000 kr.

881.765 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2267223

Fasteignamat

141.350.000 kr.

Brunabótamat

82.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
170 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr og fallegri aðkomu. Um er að ræða hús sem er skráð 170fm og þar af er bílskúrinn 35,8fm. Svefnherbergin eru þrjú og möguleiki er á að vera með fjögur. Lofthæðin er mjög góð  og vönduð tæki í eldhúsi. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is.
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum  á gólfi og góðum þreföldum fataskápum. Falleg hurð með gleri aðskilur forstofu frá íbúðarrými.
Eldhús: eldhús eignarinnar er sérlega glæsilegt og vel útbúið með fallegri eikarinnréttingu og með granít á borðum. Góð eyja er í eldhúsinu með keramikhelluborði og borðviftu sem gengur ofaní borðið þegar hún er ekki í notkun. Fallegur ljósakappi með halogenlýsingu er fyrir ofan eyjuna. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, og ofninn, örbylgjuofn, og kaffivél eru innbyggð í vegg. Laust eldhúsborð með granít á borði fylgir með. Góður gluggi er í eldhúsinu og gegnheilt parket er á gólfi.
Stofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi eldhúsi og í sama rými. Loftin eru upptekin og lofthæð mjög góð með halogenlýsingu. Gegnheilt parket er á gólfi og útgengt út á verönd frá stofunni.
Sjónvarpshol: frá stofu er búið að stúka af sjónvarpshol, möguleiki væri á að gera það að fjórða svefnherberginu. Gegnheilt parket er á gólfi.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og mjög góðir fataskápar eru í tveimur þeirra.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri eikarinnréttingu og stórum vaski. Baðkar með sturtuaðstöðu. Salerni er upphengt og góður handklæðaofn er á baðherberginu.
Þvottahús: mjög góð innrétting með vaski er í þvottahúsi, flísar eru á gólfi og innangengt í bílskúr frá þvottahúsinu.
Bílskúr: innangengt er í bílskúr sem er skráður 35,8fm og er með flísalögðu gólfi.
Aðkoma: aðkoman er mjög falleg og bílaplan er steypt með munstursteypu og með hitaílögnum.
Niðurlag: Þetta er virkilega fallegt og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr og þremur svefnherbergjum á þessum vinsæla stað í Kópavogi. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

img
Hafdís Rafnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. mar. 2007
37.240.000 kr.
46.000.000 kr.
170 m²
270.588 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ