Upplýsingar
Byggt 1973
175,9 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Hagamelur 48, talsvert endurnýjuð og einstaklega vel skipulög sérhæð í fjórbýlishúsi á melunum. Skráð 175.9 fm með bílskúr sem er 21,6 fm. Sérinngangur. 4 svefnherbergi, tvær stofur, eldhús, baðherbergi og gestasnyrting. Sérþvottahús. Tvennar svalir þar af aðrar með svalalokun. Góður bílskúr. Frábær staðsetning. Nýlega endurnýjað baðherbergi og gestasnyrting, nýlegar innihurðir, gólfefni að hluta og fl.Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 202-6218, nánar tiltekið eign merkt 01-01. Ibúðin er skráð 154,3 fm með geymslu sem er skráð 5,1 fm. Eigninni fylgir bílskúr merktu 01-01 stærð bílskúrs er 21,6 fm , birt heildarstærð 175.9 fm. Svalir eru tvennar til suðurs og vesturs, suðursvalirnar eru yfirbyggðar skráðar 8,5 fm og vestursvalir skráðar 5,2 fm. Sérbílastæði framan við bílskúr.
Eignin skiptist í: Forstofu/hol, 4 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús, sérþvottahús, baðherbergi og gestasnyrtingu.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Hér er hægt að fá sölubækling
Nánari lýsing eignarinnar:
SÉRINNGANGUR: FORSTOFA: Flísalagt gólf og gólfhiti.
HOL: Holið er parketlagt og með góðum skápum.
HERBERGI I: Innaf holi parketlagt og úr herbergi er gengið út á góðar svalir í vestur.
STOFUR: Stofa og borðstofa eru parketlagðar og úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir í suður.
ELDHÚS: Eldhúsið er með góðri innréttingu frá ca 2000, parketlegt og með borðkrók við glugga.
GESTASNYRTING: Endurnýjuð flísalögð gestasnyrting með vegghengdu salerni.
SJÓNVARPSHOL: Er ágætlega rúmgott parketlagt.
HERBERGI II: Rúmgott parketlagt herbergi.
HERBERGI III: frekar lítið herbergi með parketi.
HJÓNAHERBERGI: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gengið út á yfirbyggðu suðursvalirnar úr hjónaherberginu.
BAÐHERBERGI: Vandað flísalagt nýlega endurnýjað baðherbergi með góðri innréttingu, sturtuklefa beint í gólf með glerskilrúmi og vegghengdu salerni. Gluggi er á baðherberginu.
GEYMSLUR: Sérstigagangur niður í kjallara að sérgeymslum íbúðarinnar , önnur rúmgóð með hillum og hin köld undir stiga.
BÍLSKÚRINN: Er staðsettur við hlið hússins með góðri hurð og er komið tengi og raflögn fyrir rafbílahleðslu. Framan við bílskúrinn að götu eru sérbílastæði íbúðarinnar í innkeyrslu að bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson lögg fs sími 899-1882 , thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook