Upplýsingar
Byggt 1937
168,9 m²
5 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg efri sérhæð í vel við höldnu húsi við Tjarnargötu 44. Hæðin er skráð 168,9 fm og er þar af 20,8 fm sem tilheyrir bílskúr. Eignin er staðsett í hjarta miðborgarinnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Háskóli Íslands handan götunnar.Eignin skiptist í stigahol, anddyri, þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, geymslu og bílskúr. Tvennar svalir.
***Smelltu hér fyrir söluyfirlit***
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang inn í flísalagt anddyri.
Stigahol með teppalögðum stiga. Mikil lofthæð. Stór gluggi.
Komið er upp á parketlagðan gang sem tengir saman vistverur eignarinnar. Lítil geymsla eða fatahengi er við stiga.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu. Mikið skápapláss. Tengi er fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi.
Tvær glæsilegar samliggjandi stofur, báðar rúmgóðar og með rennihurð aðskilur þær. Útgengt er á svalir frá borðstofu og parket á gólfum.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með skápum meðfram heilum vegg. Útgengt er á svalir. Parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi, bæði í góðri stærð (10,6 fm og 7,4 fm). Parket á gólfi.
Baðherbergið er fallega uppgert með stálinnréttingu, þar er vegghengt salerni, innbyggð blöndunartæki við handlaug, stór speglaskápur og rúmgóð „walk in“ sturta.
Risloft er yfir hæðinni sem er séreign eignarinnar. Einnig fylgir sér geymsla í kjallara.
Í sameign hússins er þvottahús og geymsla sem íbúðin hefur afnot af ásamt öðrum eigendum.
Bílskúr og aðkeyrsla norðan megin við húsið tilheyrir íbúðinni. Bílskúrinn þarfnast mikils viðhalds. Aðkeyrslan er löng og því er hægt að koma fyrir nokkrum bílum.
Garðurinn er í sameign með öðrum íbúum hússins og snýr til vesturs.
Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin.
Fyrir eigendaskipti árið 2002:
Gerður blikkkantur á steinkant á þaki.
Á tímabilinu 2003 – 2005.
Frárennslisrör í kjallara endurnýjuð.
Svalir á 2. hæð endursteyptar.
Útidyratröppur endursteyptar og í þær sett heitavatnslögn. Þær eru því snjófríar.
Skipt um rafmagnstöflu og sett upp ný fyrir allt húsið (er í kjallara) og farið yfir rafkerfi hússins.
Breytingar gerðar á rennsli nokkurra ofna á 2. hæð.
Á árunum 2008 – 2020.
Skipt um gler í öllum gluggum sem tilheyra 2. hæð nema í glugga í stigagangi og í svalahurðum.
Árið 2022.
Sett upp hleðslustöð fyrir rafbíl í bílskúr 2. hæðar. Jafnframt var farið yfir rafkerfi 2. hæðar m.a. vegna skipta yfir í LED-perur.
Á tímabilinu 2024 – 2025:
Þak er málað.
Gluggar að utanverðu í húsinu málaðir.
Hurðir og hurðaáfellur innan dyra á 2. hæð málaðar og gluggar að innan.
Útidyrahurð að 2. hæð hreinsuð og olíuborin.
Hér er glæsileg eign sem er búið að viðhalda vel á frábærum stað í miðbænum í göngufæri frá tjörninni, miðbænum, Hljómskálagarði og Háskólasvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook