Upplýsingar
Byggt 1955
270,3 m²
8 herb.
2 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega notalegt 270,3m² einbýli á þremur hæðum. Fimm svefnherbergi og rúmgóðar stofur. Mögulegt að hafa aukaíbúð með sérinngang í kjallara. Gott hús á vinsælum stað í Smáíbúðahverfinu. Sólríkur garður til suðurs með sólpalli í hluta garðs.Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 270,3m², flatarmál íbúðarrýmis er 230,4m² og flatarmál bílskúrs er 39,9m². Fyrirhugað fasteignamat 2026 kr. 167.250.000.
Húsið skiptist í þrjár stofur, eldhús, snyrtingu, fimm herbergi, baðherbergi, þvottahús og sérstæðan bílakúr.
Nánari lýsing:
Miðhæð
Forstofa með flísum á gólfi.
Stofa 1 er rúmgóð með fallegu parketi lagt í síldarbeinsmunstur.
Stofa 2 er einnig rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs, fallegt parket lagt í síldarbeinsmunstur.
Eldhús er rúmgott, hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, gluggar á tvo vegu. Flísar á gólfi.
Snyrting innaf forstofugangi, flísar á gólfi og gluggi.
Efri hæð. Gengið upp teppalagðan stiga.
Hjónaherbergi er rúmgott og með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi. Svalir til austurs út frá herbergi.
Tvö minni herbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með baðkari, flísar á gólfi og upp á veggi. Gluggi er á baðherberginu.
Kjallari. Gengið niður teppalagaðan stiga. Sér inngangur er einnig í kjallarann.
Tvö svefnherbergi með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi.
Stofurými með dúk á gólfi.
Eldhús lítill eldhúskrókur með efri og neðri skápum, helluborði og vask.
Snyrting undir stiga.
Þvottahús með flísum á gólfi og sturtuklefa. Innaf þvottahúsi er geymsa og inntaksrými.
Bílskúr er skráður 39,9m² og er hann við hliðina á húsinu. Hiti er í innkeyrslu og framan við húsið.
Húsinu hefur verið haldið við í gegnum tíðina og má þar nefna td nýja rafmagnstöflu og raflagnir, hluta af gleri og gluggum hefur verið endurnýjað, nýtt þakjárn á viðbygginguna og árið 2017 var húsið múrviðgert og málað.
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook