Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
svg

465

svg

321  Skoðendur

svg

Skráð  30. jan. 2026

fjölbýlishús

Hafnarbraut 12

200 Kópavogur

79.900.000 kr.

828.838 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2510849

Fasteignamat

81.150.000 kr.

Brunabótamat

59.720.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
96,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 7. febrúar 2026 kl. 13:00 til 13:30

Lýsing

*** NÝTT Á SKRÁ -  MÖGULEG SKIPTI Á STÆRRI EIGN ***

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali (774-7373 / ragnar@heimili.is), kynna í einkasölu virkilega smart 3ja herbergja 96,4 fm. íbúð á 1. hæð á Hafnarbraut 12F -  vinsælum stað á Kársnesinu.  Er þetta endaíbúð með sérinngangi auk geymslu og merktu bílastæði í kjallara.  Íbúðin telur forstofuhol, stofu og eldhús í björtu opnu rými, tvö stór svefnherbergi og rúmgott baðherbergi þar sem jafnframt er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.  Húsið er byggt 2021 og íbúðin öll sem ný.  Stór inngarður gefur eignini aukið gildi. 


Gluggar á þrjá vegu og svalir snúa inn í skjólsælan garðinn.  Auk þess að fara inn um aðal inngang, eða með lyftu úr bílgeymslu, má nýta stiga úr garðinum inn á hæðina og að sérinngangi íbúðarinnar, sem er ákfalega þægilegur kostur.

Komið er inn í rúmgott forstofuhol með góðu skápaplássi. Úr holinu er gengið inn í öll rými íbúðarinnar;
Stofu, borðstofu og eldhús í björtu alrými og þaðan út á góðar svalir.  Góð innrétting í eldhúsi, sem er virkilega smart, hangandu háfur og gert ráð fyrir barstólum.
Nægt rými fyrir borðstofuborð og stofu.
Stórt hjónaherbergi með góðu skápaplássi og gott barnaherbergi með skáp.
Baðherbergið er einnig rúmgott, flísar á gólfi og veggjum að hluta, góð innrétting, upphengt salerni og stór flísalögð "walk-in" sturta.   

Sérgeymsla íbúðar 7,8 fm er inn af merktu bílastæði.  Hjólageymslur í sameign og aðgengi að stórum inngarði.

Fasteignamat er kr. 81.150.000
Stutt er í leik- og grunnskóla, auk þess sem njóta má gönguleiða við sjávarsíðuna og bryggjusvæðis í uppbyggingu, að ógleymdri brúarsmíði sem mun auðvelda allar samgöngur.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Ragnar Þorgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Ragnar Þorgeirsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. ágú. 2021
5.300.000 kr.
56.900.000 kr.
96.4 m²
590.249 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Ragnar Þorgeirsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík