Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Breiðvangur 11

220 Hafnarfjörður

119.900.000 kr.

518.374 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2073880

Fasteignamat

109.100.000 kr.

Brunabótamat

98.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
231,3 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Svalir
Opið hús: 4. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Heima fasteignasala kynnir Breiðvangur 11, Hafnarfjörður 220.

Mjög rúmgóð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð ásamt sér 4ra herbergja aukaíbúð í kjallara – Birt stærð er 231,3 fm.

Einstaklega vel staðsett og fjölhæf eign í grónu hverfi í Hafnarfirði. Um er að ræða íbúð á fyrstu hæð ásamt fullbúinni aukaíbúð í kjallara sem hentar afar vel til útleigu, fjölskyldubúsetu eða sem sameiginleg eign fyrir stóra fjölskyldu. Möguleiki er á að opna á milli íbúðanna og nýta eignina sem eina heild.

Nánari upplýsingar veitir: Aron M. Smárason lgf í síma 5832001 eða aron@heimaf.is.

Á sölusíðu eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Íbúð á fyrstu hæð – 112,2 fm

Forstofa:
Flísalögð forstofa með góðum fataskápum með spegilhurðum.

Stofa / borðstofa:
Rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfum. Útgengt er á svalir.

Eldhús:
Eldhús með viðarinnréttingu sem hefur verið tekið í gegn. Gólf og borðplata slípuð og innrétting filmuð árið 2025. Pláss fyrir uppþvottavél og stór borðkrókur. Parket á gólfi.

Þvottahús / búr:
Inngengt úr eldhúsi. Gott geymslu- og vinnupláss.

Baðherbergi:
Endurnýjað árið 2018. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum gráum flísum, upphengt salerni, ljós viðarinnrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.

Svefnherbergi:

  • Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, harðparket á gólfi, nýir fataskápar (2025) og útgengt á svalir.

  • Tvö barnaherbergi: Annað minna og hitt rúmgott, bæði með harðparketi.

Aukaherbergi:
Úr holi er stigi niður í herbergi í kjallara sem hentar vel sem svefnherbergi, sjónvarpsherbergi eða skrifstofa. Stiginn leiðir niður í aukaíbúð og hægt er að opna á milli.

Aukaíbúð í kjallara – 119,1 fm

Fullbúin og rúmgóð 4ra herbergja íbúð sem hentar afar vel til útleigu.

Forstofa:
Með fatahengi, parket á gólfi.

Svefnherbergi:
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll af góðri stærð.

Eldhús / stofa:
Eldhús með ljósri viðarinnréttingu (sett upp 2014), eldavél, ofni og viftu. Opið rými með plássi fyrir borðstofuborð og stóran sófa.

Baðherbergi:
Einfalt og snyrtilegt, með flísalagðri sturtu og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.

Auðvelt er að bæta við hleðslustöðvum á sér heimtaug á bílastæði.

Framkvæmdir og viðhald.

Á húsinu og lóð:

  • 2013: Þakjárn, þakrennur og niðurfallsrör endurnýjuð

  • 2015–2016: Gluggar endurnýjaðir að hluta, drenlögn, einangrun og þétting útveggja

  • 2018: Álklæðning og einangrun á hluta norðurhliðar, gluggar á jarðhæð endurnýjaðir

  • 2019: Allir gluggar á norður- og austurhlið endurnýjaðir, múrviðgerðir og málun

  • 2021: Allar hliðar hafa verið klæddar fyrir utan suðurhlið, allir gluggar endurnýjaðir og svalir endursteyptar

  • 2023: Fimm ný bílastæði og fjórar hleðslustöðvar settar upp á sér heimtaug

  • 2023: Nýr mynddyrasími

  • 2024: Nýtt ruslatunnuskýli fyrir flokkun sett upp

Í íbúð á efri hæð:

  • 2014: Forstofa flísalögð og nýtt harðparket lagt á megnið af íbúð

  • 2018: Baðherbergi endurnýjað

  • 2021: Skipt um svalahurðir

  • 2025: Nýir fataskápar í hjónaherbergi og eldhús tekið í gegn

Í íbúð í kjallara:

  • 2014: Eldhús sett upp

  • 2016: Parket endurnýjað að hluta

Samantekt

Mjög vel við haldin og fjölhæf eign með mikla möguleika. Aukaíbúð býður upp á góðar leigutekjur eða sveigjanlega nýtingu. Fjölmargar og stórar framkvæmdir hafa verið gerðar bæði á húsinu og í íbúðum síðustu ár.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. okt. 2018
55.200.000 kr.
34.750.000 kr.
231.3 m²
150.238 kr.
2. maí. 2014
35.900.000 kr.
37.900.000 kr.
231.3 m²
163.856 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone