Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
raðhús

Dalatangi 16

270 Mosfellsbær

122.900.000 kr.

852.288 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2083310

Fasteignamat

90.300.000 kr.

Brunabótamat

70.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
144,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 5. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Dalatangi 16, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir fallegt og mikið endurnýjað 144,2 fm. raðhús að Dalatanga 16, 270 Mosfellsbær. Um er að ræða gott fjölskylduhús á tveimur hæðum með bílskúr og sólpalli með heitum potti.

Nánari lýsing á eigninni
Neðri hæð
Forstofa 
er með fataskáp, flísum á gólfi og gólfhita. Teppi er á stiga
Svefnherbergi/hjónaherbergi er rúmgott og með fataskápum og parketi á gólfi. Inn af herbergi er baðherbergi, lítið geymslurými er í herbergi.
Baðherbergi (innaf hjónaherbergi) er flísalagt, Innrétting, vegghengt salerni, handklæðaofn og sturta. Úr baðherbergi er útgengt út á timburverönd með heitum potti.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi, handklæðaofni og innréttingu. Í innréttingu er gert ráð fyrir tveimur þvottavélum og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúrinn er með rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð, heitt- og kalt vatn. Innangengt úr íbúð.

Efri hæð
Hol
 er með harðparketi á gólfi. Úr holi að aðgengi upp á rúmgott geymsluloft.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er ofn, spanhelluborð, vínkælir, innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur sem seljandi lætur fylgja með eigninni.
Stofa er í samliggjandi í opnu og björtu rými með eldhúsi, með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir og timburverönd í suðurátt. 
Svefnherbergi nr. 2 er með skáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með skáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofn og baðkari með sturtu aðstöðu með flísum á gólfi.
Geymsluloft  er 18 m2 og er útbúið með stiga sem dreginn er niður.
Bílastæði er hellulagt með snjóbræðslu fyrir framan húsið og einnig eru bílastæði við hlið húslengjunnar.
Garður með timburverönd, búið er að reisa vegg þar sem gert er ráð fyrir sjónvarpi hjá heitum potti í suðvesturátt. Tröppur frá verönd uppá svalir.

Samkvæmt seljanda hefur eignin verið mikið endurnýjuð af fyrri eigendum. Eldhús og bæði baðherbergi voru endurnýjuð árið 2021-2022. Skipt var út öllum gólfefnum, innréttingum og innihurðum. Búið að endurnýja rafmagnstöflu að hluta, tengla og rofa.  Þvottahúsi breytt í baðherbergi með aðgengi út í pott. Geymslu hefur verið breytt í þvottahús. Forstofa var stækkuð og settur gólfhiti. Bakgarður grafinn niður skipt um dren- og regnvatnslagnir. Svalir stækkaðar og pallur með heitum potti settur. Húsið málað að utan að aftan og allt tréverk málað að framan. 
Eignin er miðsvæðis og á vinsælum stað. Stutt er í alla þjónustu, skóla og verslanir.

Nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 822-4848,  elisabet@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali í síma 8673040, kristjan@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. jún. 2025
82.500.000 kr.
118.000.000 kr.
10101 m²
11.682 kr.
24. maí. 2023
75.250.000 kr.
100.900.000 kr.
144.2 m²
699.723 kr.
26. okt. 2018
42.000.000 kr.
51.500.000 kr.
144.2 m²
357.143 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík