Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Einivellir 7

221 Hafnarfjörður

59.900.000 kr.

774.903 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2280531

Fasteignamat

58.100.000 kr.

Brunabótamat

41.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
77,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir fallega, rúmgóða og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með mjög stórri afgirtri verönd í litlu lyftuhúsi á á góðum stað við Einivelli á Völlunum í Hafnarfirði. Samkvæmt fasteignayfirliti er íbúðin 77,3 fermetrar og þar af er geymsla 7,0 fermetrar.

Þvottahús er innan eignar og rúmgóð geymsla er í kjallara. Nýlega er búið að endurnýja flísar á vegg í eldhúsi og setja nýja borðplötu. Einnig er búið að endurnýja teppi á sameign og mála.


Lýsing eignar:
Inngangur,
sameiginlegur, snyrtilegur, flísalagt andyri og teppi á stigahúsi. Lyfta er í húsinu.
Forstofa, parketlögð og rúmgóð með fataskáp.
Gangur, parketlagður.
Stofa / borðstofa, parketlögð og björt með gluggum í tvær áttir og útgengi er á mjög stóra afgirta verönd til suðvesturs.
Eldhús, er opið við stofu og borðstofu, parketlagt með fallegum viðarinnréttingum, flísum á milli skápa, uppþvottavél og ofni í vinnuhæð.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt wc, innrétting og handklæðaofn.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf og með vaski.
Herbergi, parketlagt með fataskápum á heilum vegg.

Húsið, lítur vel út og sameiginleg bílastæði eru á lóð við húsið og búið að setja upp rafhleðslustöðvar.

Í kjallara hússins er:
Sér geymsla, 7,2 fermetrar með máluðu gólfi. 
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla með útgengi á lóð.

Staðsetning eignarinnar er mjög góð þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, verslun, líkamsrækt, íþróttasvæði Hauka, sundlaug, góðar göngu- og hjólaleiðir o.fl.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. júl. 2008
19.275.000 kr.
21.050.000 kr.
77.3 m²
272.316 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone