Opið hús: Lundarbrekka 14, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 7. febrúar 2026 milli kl. 14:30 og kl. 15:00.
Lýsing
Nánari lýsing:
Anddyri/Hol komið inn af gangi í rúmgott hol með fataskáp. Opið frá holi að stofu og eldhúsi.
Stofa/Borðstofa er björt og falleg með góðum gluggum, fallegt útsýni til norðurs og vesturs. Útgengi á svalir.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, gott skápapláss. Innbyggður ísskápur. og uppþvottavél. Flísar á gólfi. Borðkrókur með útsýni til norðurs og vesturs. Helluborð, bakaraofn í vinnuhæð.
Þvottahús/Geymsla innaf eldhúsi er afar rúmgott þvottahús með hvítri innréttingu. Gott geymslupláss og vinnupláss. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur, opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með útgengi á sólríkar suðursvalir. Nýlegir fataskápar yfir heilan vegg.
Herbergi II ágætt herbergi, gluggi til suðurs. Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi III ágætt herbergi, gluggi til suðurs. Parket á gólfi.
Herbergi III er staðsett í kjallara. Stærð 9,6 fm. Opnanlegur gluggi. Tilvalið til útleigu. Aðgangur að snyrtingu á gangi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi. Baðkar með glerskilrúmi. Handklæðaofn.
Geymsla íbúðinni fylgir ca 6 fm geymsla í kjallara sem er ekki skráð í fm tölu eignarinnar.
Viðhald Íbúð 302
2017 - Eldhúsinnrétting endurnýjuð. Gólfflísar í eldhúsi endurnýjaðar.
2018 - Nýjar teppaflísar lagðar í herbergi á jarðhæð.
2019 - Nýir skápar í hjónaherbergi.
2022 - Parket endurnýjað í öllum rýmum. Nýr skápur í holi.
2023 - Þvottahúsinnrétting endurnýjuð. Þvottahús flísalagt. Nýr bakaraofn í eldhús. Nýr skápur í barnaherbergi.
Allir ofnar verið endurnýjaðir síðustu ár, nema í herbergi á jarðhæð. Rafmagn í íbúð hefur verið endurnýjað að mestu.
Viðhald Lundarbrekka12-16.
2019/2020 - Miklar framkvæmdir. Þak yfirfarið, lagfært og málað. Svalir brotnar niður og endursteyptar á suðurhlið ásamt meira múrverki og inndælingum víða á húsinu. Einstaka gluggar og fög endurnýjuð. Húsið heilmálað.
2025 - Múrviðgerðir og inndælingar á suðurhlið hússins. Allir gluggar þéttir. Verkið mun klárast að vori 2026 og er að fullu fjármagnað.
Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði fyrir framan húsið. Garður er sameiginlegur. Snyrtileg sameign með hjólageymslu.
Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu og stofnbrautir, þá eru þrír leikskólar og þrír grunnskólar í nágrenninu auk íþróttasvæðis og verslana.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.