Opið hús að Kirkjuvegi 59 efri hæð Vestmannaeyjum mánudaginn 9. febrúar 2026 á milli kl. 17:00 og kl. 17:30. Verið velkomin.
Lýsing
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 5 herbergja efri hæð í þríbýlishúsi sem fengið hefur gott viðhald í gegnum árin ásamt bílskúr vel staðsett miðsvæðis í Vestmannaeyjum.
**Þrjú svefnherbergi **Fataherbergi og baðherbergi innaf hjónasvítu **Tvö baðherbergi **Bílskúr **Tvær geymslur **Járn á þaki endurnýjað 2019
Eignin var sameinuð úr tveimur íbúðum í eina árið 2014-2015 og var þá endurhönnuð og mikið endurnýjuð.
Eignin er skráð 177,2 fm samkvæmt HMS og skiptist í íbúð 140,6 fm, geymslu 0001 6,8 fm, geymslu 0003 5,9 fm og bílskúr 23,9 fm.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Hol/gangur með flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og falleg með gluggum á tvo vegu og útgengt á suðursvalir, parket á gólfi.
Eldhús var endurnýjað 2015 með hvítri innréttingu, tvöfaldur bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð og innbyggð uppþvottavél. Fallegt útsýni úr eldhúsi, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi / hjónasvíta er mjög rúmgott með baðherbergi innaf ásamt fataherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi I innaf hjónaherbergi var allt endurnýjað 2014-2015 og er flísalagt með walk in sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi II með útgengt á suðursvalir (möguleiki á að opna á milli svala hér og sem er útgengt á úr stofu), parket á gólfi.
Svefnherbergi III innaf forstofu með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi II er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkar með sturtu í, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél.
Þvottahús er innaf hjónaherbergi með góðri innréttingu, skolvaskur, opnanlegur gluggi og flísar á gólfi. Í þvottahúsi er annar sameiginilegur inngangur í íbúð úr sameign.
Bílskúr er með nýlegri rafdrifinni innkeyrsluhurð, rafmagni og vatni. Bílastæði fyrir framan bílskúr fylgir eigninni.
Geymslur eru tvær sem fylgja þessari íbúð og er önnur þeirra 5,9 fm og hin 6,8 fm og er með glugga.
Snyrtileg og gróin, sameiginleg lóð er í kringum húsið.
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin en járn á þaki var endurnýjað 2019, gluggar og gler hafa verið endurnýjaðir eftir þörfum og var eignin máluð að utan sumarið 2025. Gólfteppi í stigagangi endurnýjað 2020.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat