Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
203,2 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind löggiltur fasteignasali kynna afar glæsilega 5. herbergja Penthouse íbúð á 6.hæð (efstu) við Kuggavog 19.  Eignin er skráð 195,9 fm. Tvennar þaksvalir ásamt tveimur stæðum í bílageymslu.   Aukin lofthæð og stórbrotið útsýni út á sundin og til fjalla. Bókið skoðun HÉR. 

Íbúðin er hönnuð og innréttuð í samráði við Rut Káradóttur
 innanhússarkitekt. Allar innréttingar eru frá HTH. Flísar og gólfefni eru sérpöntuð frá Ebson. Aukin lofthæð, tekin niður með hljóðdempandi loftdúk. Innfeld lýsing í lofti.  Allar innihurðir eru sérsmíðaðar og í yfirstærð. Rúllugardínur í opnum rýmum eru fjarstýrðar. Tvennar þaksvalir með miklu víðsýni.  Þrjú svefnherbergi, tvær stofur, tvö baðherbergi auk gestasnyrtingar. Bjart og fallegt opið rými í stofu/borðstofu með glæsilegum arni. 

*** Eignin verður ekki sýnd á opnu húsi. Bókið einkaskoðun hjá sigridur.lind@heimili.is ***

Nánari lýsing íbúðar:  
Forstofa: komið er beint inn í forstofu íbúðar úr lyftu. Forstofa er rúmgóð og björt, flísalögð. Aðgengi að stigahúsi.  
Hol: með góðu skápaplássi og gestasnyrtingu. Útgengi út á þaksvalir.
Eldhús, borðstofa og stofa: í einu stóru og björtu rými með mikilli lofthæð, arinn fyrir miðri stofu. Hljóðdempandi loftdúkur í lofti.  Gólfsíðir gluggar, magnað útsýni. Eldhúsinnrétting er frá HTH hönnuð af Rut Káradóttur, gott skápapláss, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, borðplötur eru flísar frá Epson. Stór eyja með helluborði og innbyggðum vínkæli. Vönduð eldhústæki frá AEG.
Hjónasvíta með sér baðherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með miklu skápaplássi. Innaf herbergi er fullbúið baðherbergi flísalagt með marmaraflísum frá Epson, HTH innréttingum, Corian borðplötu og walk-in sturtu. Gólfhiti. Falleg innrétting og vönduð tæki frá Duavit.
Svefnherbergi I & II : Rúmgóð herbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfum.
Setustofa: Notalegt fjölskyldurými með útgengi út á þaksvalir. Nýtt í dag sem sjónvarps og/eða vinnurými. Glæsilegt útsýni.
Baðherbergi: Afar glæsilegt með walk-in sturtu og vandaðri tímalausri innréttingu. Gólfhiti. Innréttingar frá HTH, borðplata úr Corian. Flísalagt með sérpöntuðum flísum frá Epson. Blöndunartæki, vaskur og salerni frá Duavit. ( annað fullbúið baðherbergi er í hjónasvítu. )
þvottaherbergi:  Stæði fyrir þvottavél og þurrkara, gott vinnuborð með skolvaski. Skápar yfir heilan vegg. Gólf flísalagt með flísum frá Epson.
Þaksvalir: Tvennar tæplega 50 fm þaksvalir fylgja eigninni. Flísalagðar og með tengi fyrir heitt og kalt vatn. Einstakt útsýni. 
Bílastæði: Eigninni fylgja tvö stæði í bílageymslu. Rafhleðslustöð. Með eigninni fylgir 22 fm sérgeymsla.

Vogabyggð er nýtt hverfi í Reykjavík, einstök staðsetning við Elliðarárvog með nálægð við hafið og náttúruna.  Stutt er í leik- og grunnskóla og í alla þjónustu í Vogabyggð og í Vogahverfi.
Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni og upp í Elliðaárdal eitt af fallegustu útivistarsvæðum borgarinnar.  Göngubrú er yfir Sæbraut sem eflir vistvænar samgöngur milli hverfanna og eykur öryggi gangandi vegfarenda. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703. 







 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. okt. 2019
46.900.000 kr.
125.000.000 kr.
195.9 m²
638.081 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík