Sölusýning Aðaltún 2-4 Mosfellsbæ.
Lýsing
Húsið er mjög veglega innréttað og skilast fullbúið með gólfefnum, innréttingar frá HTH og tæki vönduð. 2-3 svefnherbergi, gólfsíðir gluggar í alrýmum sem snúa að fallegu grónu umhverfi. Gólfhiti í öllum gólfum, hljóðdúkur í lofti (góð hljóðvist). Að utan er húsið einangrað og klætt með ál / tré gluggum (þrefalt gler) og er húsið því viðhaldslétt. Lóð er falleg og frágengin, sólpallur til suðurs og stór hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Forstofa: Vínylparket á gólfi og góður fataskápur.
Alrými: Opið, stórt og mjög fallegt rými með vínylparketi á gólfi, gólfsíðir gluggar, útgengi á suður verönd / lóð í fallegu grónu umhverfi.
Eldhús: Opið við alrými, þar er glæsileg sérsmíðuð innrétting, mikið skápa og vinnupláss. Vönduð tæki, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, spanhelluborð með viftu.
Sjóvarpshol: Opið við alrými, gott rými sem nýtist vel fyrir gott sjónvarp og sófa. Getur einnig nýst sem þriðja svefnherbergið sbr teikningu.
Hjónaherbergi: Stórt og gott herbergi með stórum fataskápum, vínylparket á gólfi.
Svefnherbergi: Gott herbergi með fataskáp og vínylparketi á gólfi.
Baðherbergi: Fallega innréttað og flísalagt með góðri innréttingu, einhalla sturtu og gleri, handklæðaofni, gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús: Flísalagt og sér innan íbúðar.
Geymsla: Sér geymsla með glugga og flísum á gólfi. Innangengt frá innkeyrslu.
Lóð: Mjög falleg og fullfrágengin lóð með hellulögðum stéttum, innkeyrslu með hitalögn og timburveröndum með skjólveggjum. Sjarmerandi gróið umhverfi og lóð til suðurs.
Efnisval: Innréttingar sérsmíðaðar frá HTH. Planka vinylparket í eikarlit á gólfum (slitsterkt og fallegt) lagt án gólflista. Gluggar eru ál / tré með þreföldu gleri frá Húsasmiðjunni. Innihurðir eru hvítar innfelldar.
Þetta er nýtt og sérstaklega sjarmerandi parhús á einni hæð þar sem að engu hefur verið til sparað, í umhverfi sem kemur á óvart. Sjón er sögu ríkari. Stutt er í sundlaug, skóla golfvöll ofl.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.