Opið hús: Brekkubyggð 33, 210 Garðabær, Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Mikið hefur verið endurnýjuð á undanförnum árum að innan sem utan.
Eignin skiptist í:
- Þrjú svefnherbergi. Á teikningu eru 2 svefnherbergi og þvottahús með glugga. Í dag er þvottahúsið nýtt sem svefnherbergi.
- Rúmgóða stofu og borðstofu, útgengi út í garð (fyrir aftan hús)
- Eldhús með innréttingu frá Kvikk og tækjum frá Eirvík
- Endurnýjað baðherbergi með gólfhita og innbyggðu sturtubúnaði. Fallegar flísar.
- Sérinngang fyrir framan hús
- Geymsluloft yfir forstofu og baðherbergi (ca. 10 fm)
- Leikloft/geymslu yfir barnaherbergi
- Bílskúr með hita, skráður 19,3 fm
Framkvæmdalisti síðustu ára:
2020 - Baðherbergi tekið í gegn- gólfhiti settur í - flísar frá Flísabúðinni, blöndunartæki sett inn í vegg f/sturtu og færsla á þvottavél/þurkara.
2021 - Bílskúr flotaður - Burðasúla færð inn í vegg í samráði við burðaþols verkfræðing- teikning samþykkt í kjölfarinu
2022 - Gólfhiti settur í stofu, eldhús, forstofu og litla herbergið við forstofuna - skipt um ofna í svefnherbergjum- flotað
- Skipt um glugga á vesturhlið, svalahurð stækkuð og sett í samþykkta teikningu (var ósamþykkt)
- Hafist handa við að skipta um þaksperrur, borðaklæðningu, lofthæð tekin upp og settur öndunardúkur og bára lektuð upp allt í samráði við Verkfræðistofu Ívars Hauksonar ehf - teikningar liggja fyrir á vef Garðabæjar.
- Loft tekið niður og rafmagn dregið í og ljós tengd
- Eldhús frá Kvikk
2024 - Skipt var um restina af gluggum og málað að utan - Ca 90 fm pallur settur upp.
Shelly snjallljósastýringar eru í íbúðinni. Fyrir ofan baðherbergi og forstofu eru geymslupláss uppá c.a 10 fm
Í barnaherberginu er leikloft- notað sem geymsla í dag.
Eignin stendur á rólegum og vinsælum stað í Garðabæ.
Pallurinn umlykur húsið að hluta og býður upp á frábært útivistarsvæði í góðu skjóli. Hentar einstaklega vel fjölskyldum sem vilja nýta sér gott geymslupláss og vel skipulagða eign með nútímalegri endurnýjun.
Sjón er sögu ríkari!
Hafðu samband við Jason Kristinn í síma 775 1515 eða á jason@betristofan.is löggiltan fasteignasala til að bóka skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.