Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Einholt 9

105 Reykjavík

63.900.000 kr.

889.972 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2011494

Fasteignamat

52.700.000 kr.

Brunabótamat

38.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1940
svg
71,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
Opið hús: 9. febrúar 2026 kl. 12:00 til 12:30

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á annari hæð auk óskráðs rýmis í risi . Herbergi í kjallara með aðgang að snyrtingu. Það hentar vel fyrir unglinginn og sem vinnuherbergi og jafnvel til útleigu

Auk þess er geymsla í kjallara, stór garðaur og sameiginleg hellulögð verönd. Íbúðin er í rólegri götu og í göngufæri við þjónustu af fjölbreyttu tagi. Matvöruverslunin Bónus, útivistarsvæðin á Klambratúni, Listasafn Reykjavíkur og kaffihúsið á Kjarvalsstöðum eru dæmi um þjónustu rétt innan seilingar.

Eignin þarfnast nosturs en hefur afar mikla möguleika.

Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg fast: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Falleg, björt og notaleg íbúð í tveggja hæða, fjögurra íbúða húsi í rótgróinni götu í Holtunum.

Gengið er inn á sameiginlegan gang og þaðan upp upp á stigapall á annarri hæð. Stór og fallegur gluggi tengir hæðirnar saman. Af stigapallinum er gengið inn í íbúðina sem er með upprunalegu eikarparketi.

Þegar komið er í inn í íbúðina er fyrst komið inn í hol með búrskáp sem nær frá gólfi upp í loft. Á hægri hönd er gengið inn á baðherbergi með sturtu. Gluggi er á baðherbergi.

Á vinstri hönd er bjart eldhús með góðri innréttingu og borðkrók. Úr eldhúsinu er fallegt útsýni yfir vinsælan leikvöll.

Beint af augum er gengið inn í rúmgóða og bjarta stofu, með pottofnum og listum í lofti. Gluggar eru hvítmálaðir með djúpum og góðum gluggakistum.

Innaf stofunni er svefnherbergi með góðum klæðaskáp. Útfrá stofunni er gengið inn í borðstofu með innbyggðum bókahillum. Opið á milli stofu og borðstofu sem er með innbyggðum kertastjökum sem gefa rýminu skemmtilegan blæ. Eins og stofan er borðstofan björt, með fallegum gluggum og góðum gluggakistum. Barnvænlegur viðarstigi gengur frá borðstofunni upp í ris sem sem er jafnstórt íbúðinni að gólffleti en er ekki í fullri hæð. Það nýtist vel sem leik- eða svefnherbergi. Á björtum sumarkvöldum eða stjörnubjörtum vetrarkvöldum er töfrandi að horfa upp í himinninn gegnum loftgluggann í risinu. kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús, rúmgóð geymsla og rúmgott herbergi sem er tilvalið fyrir unglinginn, heimaskrifstofuna eða jafnvel til útleigu.


img
Viðar Böðvarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
img

Viðar Böðvarsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík

Viðar Böðvarsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík