Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og skemmtileg 252,7 m2 efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Leirutanga 22 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 252,7 m2, þar af íbúðarrýmið 205,7 m2 og bílskúr 47 m2. Frábær staðsetning við opið svæði í grónu hverfi. Stutt í vinsælar gönguleiðir, útivistarsvæði, golfvöll, skóla, sundlaug, líkamsrækt o.fl.
Stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Fallegur afgirtur garður með geymsluskúr og timburverönd í suðurátt.
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, salerni, forstofu, sjónvarpshol, garðskála, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr. Glæsilegt útsýni. Gott skipulag. Fallegar innréttingar og gólfefni. Undir öllum flísum er gólfhiti.
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fataskápum og flísum á gólfi. Úr forstofu er innangengt í bílskúrinn.
Bílskúr er mjög rúmgóður með tveimur innkeyrsluhurðum og epoxý málningu á gólfi. Innst í bílskúr er innrétting með miklu skápaplássi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Góðir gluggar eru í rýminu. Úr bílskúr er aðgengi upp á geymsluloft.
Hol er með flísum á gólfi.
Gestasnyrting er flísalögð með hita í gólfi.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með miklu skápaplássi. Í innréttingu er Amerískur ísskápur, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar, gashelluborð og háfur. Vönduð tæki frá Smeg og Mile. Hiti í gólfi. Innréttingar teiknaðar af Rut Kárad.
Stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Í stofu er fallegur arinn.
Garðskáli er rúmgóður með „innigrilli“ og flísum á gólfi. Úr garðskála er gengið út á timburverönd og garðinn.
Neðri pallur.
Hol er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu. Hiti í gólfi.
Fataherbergi
Efsti pallur:
Er opið rými með parketi á gólfi. Er í dag notað sem sjónvarpshol og svefnrými. Væri hægt að breyta í herbergi.
Verð kr. 149.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.