Opið hús: Tröllakór 8, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 08. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Alls 101,1 fm með svölum.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgóða stofu, eldhús og anddyri. Sérgeymsla rúmlega 9 fm er í kjallara ásamt hjóla og vagnageymslu.
Stutt er í fjölbreytta þjónustu, skóla, leiksskóla og útivist.
Nánari lýsing:
Anddyri með skáp og parket á gólfi.
Plastparket er á gólfum íbúðar fyrir utan baðherbergi og þvottahús.
Svefnherbergi I með fataskáp og parketi á gólfi. Gluggi til suðurs.
Svefnherbergi II með fataskáp, skápaplássi og parketi á gólfi, gluggi til norðurs.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi, með vaski. Flísar á gólfum.
Eldhúsið er með innréttingu, gluggi út á svalagang. Harðparket á gólfi.
Eldhús og stofa eru í opnu rými.
Stofan er parketlögð með útgengi út á rúmgóðar suðursvalir.
Sérgeymsla í sameign. 9,3 fermetrar.
Hjólageymsla í sameign.
Stæði í bílageymslu fylgir.
FALLEG OG RÚMGÓÐ ÍBÚÐ Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is - löggiltur fasteignasali
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.