Upplýsingar
Byggt 1964
157,8 m²
6 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Rúmgóð efri sérhæð að Austurgerði 6 á Kársnesi í Kópavogi. Eignin er skráð 157,8 fm og er á 2. hæð í grónu og fjölskylduvænu hverfi.
Pálsson fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgóða og vel skipulagða 6 herbergja efri sérhæð við Austurgerði 6 á Kársnesi í Kópavogi. Eignin er 6 herbergja með fjórum svefnherbergjum, tveimur stofum, einu baðherbergi og þvottahúsi innan íbúðar.
** 4 svefnherbergi
** 2 stofur
** Sér þvottahús
** Fjölskylduvæn staðsetning á Kársnesi
Birt stærð skv. HMS er 157,8m2.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Eignin skiptist í forstofu/anddyri, hol/fjölskyldurými, stofu/borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa/anddyri er rúmgott og tekur vel á móti með góðu plássi fyrir fatahengi og geymslu.
Hol/fjölskyldurými er miðsvæðis í íbúðinni og hentar vel sem sjónvarpshol, leikrými eða vinnuaðstaða.
Stofa/borðstofa er rúmgott samverurými með góðu plássi.
Eldhús er í góðum tengslum við borðstofu og býður upp á góða aðstöðu og skápapláss.
Þvottahús er sér innan íbúðar með aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara og auknu geymslu- og vinnuplássi.
Hjónaherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og nýtist einnig vel sem skrifstofu- eða gestaherbergi.
Svefnherbergi 3 er með fataskáp og góðu plássi fyrir barnaherbergi eða vinnuaðstöðu.
Svefnherbergi 4 er með fataskáp og nýtist vel sem svefn- eða vinnurými.
Baðherbergi er rúmgott og snyrtilegt.
Fjölskylduvæn eign á góðum stað nálægt leik- og grunnskóla og allri helstu þjónustu, verslun og samgöngum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.