Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Valgerður Ása Gissurardóttir
Vista
fjölbýlishús

Sóltún 7

105 Reykjavík

285.000.000 kr.

1.320.667 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2250538

Fasteignamat

182.550.000 kr.

Brunabótamat

133.320.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2000
svg
215,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir:  Sóltún 7 Rvk. Glæsilega þakíbúð (penthouse) á sjöundu og efstu hæð í fjölbýlishúsi að Sóltúni 7, 105 Reykjavík, (ein íbúð á hæðinni)  með miklu útsýni til allra átta. Íbúðin er 215,8 fm að stærð með þremur samliggjandi bílastæðum í bílahúsi og rafhleðslustöð fyrir bíla. Þrjár geymslur í kjallara fylgja (þar af tvær ekki skráðar í fermetratölu) og ein útigeymsla á svölum. Frábær staðsetning miðsvæðis í borginni. 

Umhverfis íbúðina eru rúmlega 200 fermetra hellulagðar svalir/terras. Húsið er byggt á árunum 2000 til 2001 og íbúðin tekin í notkun árið 2005. Húsið sem íbúðin er í stendur á verðlaunalóð þar sem næg bílastæði er til notkunnar fyrir bæði íbúa og gesti. Húsið er byggt af ÍAV og hannað af Ingimundi Sveinssyni arkitekt. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt.

Íbúðin er hönnuð af Birni Skaptasyni, Atelier arkitektar, sem einnig hafði umsjón og eftirlit með frágangi. Íbúðin er öll sérhönnuð og lagði arkitekt áherslu á listræna tæra heildarsýn, yfirvegað og rólegt yfirbrag þar sem öll svæði íbúðarinnar tengjast vel og mynda gott flæði. Tímalaus hönnun.  Einungis voru notuð fyrsta flokks efni þar sem ál er eitt af grunnefnum sem látið er ganga í gegnum íbúðina. Á öllum gólfum eru 2 cm þykkar Carrere ítalskar marmaraflísar (stærð 70 x 100 cm). Hiti er í gólfum. Í íbúðinni eru rennihurðir úr áli með tvöföldu sandblásnu gleri. Granít er á borðum, innréttingar hvítlakkaðar og hluti lofta er niðurtekinn með innbyggðri lýsingu.

Lýsing eignar:: Lyftan, sem er læst, opnast beint inn í rúmgóða forstofu mð skáp, Þrjú herbergi eru í íbúðinni  þar af er hjónaherbergi en þaðan er innangengt í bað og fataherbergi (en fataherbergi er geymsla á teikningu). Tvö baðherbergi eru í íbúðinni með P.Stark W.C. og blöndunartækjum, rúmgott þvottaherbergi með tveimur vínkælum, rúmgóð stofa með arni, rúmgóð borðstofa með innbyggðum skenk, sjónvarpsstofa og eldhús. Íbúðinni fylgja fimm sjónvörp þ.m.t LG sjónvarp með „sound bar“ í sjónvarpsstofu og að auki fylgir sérsmíðaður sófi í rýminu. Einnig fylgja tæki í eldhúsi, sem eru álklædd frá Gaggenau þ.m.t ísskápur, sem er 2.10 m á hæð með franskri opnun, frystiskúffu og klakavél. 80 cm spanhelluborð, tveir bakaraofnar, 70 cm á breidd, hitaskúda dýpt 25 cm.,örbylgjuofn með grilli, innbyggð kaffivél og uppþvottavél. Svalir umlykja alla íbúðina og af þeim er mjög gott útsýni yfir Reykjavík. Yfir gluggum á suðurhlið eru rafmagnsdrifnar markísur.

Þetta er stórglæsileg eign sem vert er að skoða á þessum eftirsótta stað við miðborgina. Ath: 3 stæði í bílahúsi fylgja eigninni.

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

img
Glódís Helgadóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hraunhamar fasteignasala
Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
img

Glódís Helgadóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður

Glódís Helgadóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður